Stjórn Körfuknattleiksdeildar Breiðabliks boðar til aðalfundar miðvikudaginn 9. Apríl kl. 17:00 í veitingasalnum á 2. hæð í Smáranum.
Dagskrá:
- Kosning fundarstjóra og ritara
- Formaður leggur fram skýrslu deildarinnar
- Ársreikningur staðfestur af skoðunarmönnum lagður fram til samþykktar
- Kosning formanns
- Kosning stjórnarmanna
- Umræður um málefni deildarinnar og önnur mál
Allir félagsmenn körfuknattleiksdeildar, 18 ára og eldri eru kjörgengir og geta boðið sig fram til setu í stjórn eða ráðum.
Skriflegu framboði skal skila til framkvæmdastjóra félagsins að lágmarki viku fyrir boðaðan aðalfund eða í síðasta lagi kl. 17:00 miðvikudaginn 2. apríl 2025.
Að öðru leyti vísast í lög félagsins sem finna má á heimasíðu Breiðabliks, breidablik.is
Við hvetjum alla áhugasama um að hafa samband og gefa sig fram til að taka þátt skemmtilegu starfi innan deildarinnar.
Stjórn KKD Breiðabliks