Breiðablik átti þrjá keppendur í hjólreiðum á nýyfirstöðnum Smáþjóðaleikum sem fóru fram í Andorra. Þetta voru þau Björg Hákonardóttir, Ingvar Ómarsson og Júlía Oddsdóttir.

Þetta var fyrsta landsliðsverkefni Bjargar í hjólreiðum en hún keppti í frjálsum íþróttum á sínum yngri árum. Björg keppti í fjallahjólreiðum á fimmtudaginn í krefjandi braut og stóð sig mjög vel. Þetta var einnig fyrsta landsliðsverkefni Júlíu í hjólreiðum en hún keppir einnig á hjólaskautum (Roller Derby). Hún keppti í götuhjólreiðum á laugardaginn en var því miður búin að vera veik dagana fyrir keppni. Hún mætti engu að síður á ráslínu og gerði sitt allra besta sem skilaði henni í 20. sæti og hún varð 3. af íslensku stelpunum (af 6). Ingvar keppti í tímatöku á þriðjudaginn og var 10. af 26 keppendum og gerði svo einnig mjög vel í götuhjólreiðunum þar sem hann varð 13.-17 af 34 keppendum sem kláruðu keppnina (og fremstur íslensku strákanna). Þrátt fyrir að um Smáþjóðaleika sé að ræða þá voru nokkrir atvinnuhjólarar mættir til leiks og við erum gríðarlega stolt af framlagi og árangri okkar fólks. (Mynd: Magnús Valgeir Gíslason).