MARTEINN SIGURGEIRSSON
Rifjar upp sprell og athafnaþrá
- júní í Salnum kl 20
Kópavogsæskunnar á öldinni sem leið með kvikmyndum og spjalli.
Frekari upplýsingar og bókanir : salurinn.is
Meðal þess sem sagt verður frá eru samskipti unglinga við herinn á stríðsárunum ( Pétur Sveinsson og Sigurður Grétar Guðmundsson ) Bræðurnir frá Kópavogsbýlinu þeir: Magnús, Einar og Guðmundur byggja fyrsta íþróttavöllinn í Kópavogi. Lögreglan í Hafnarfirði handtekur unglinga í Hlöðunni, félagsmiðstöð Þórðar á Sæbóli við Kársnesbraut. Mánudagsblaðið komst í málið! Fimm drengir úr Kópavogi í sjávarháska við Álftanes 1964. Uppskeruhátíð í Agnarögn fyrstu félagsmiðstöðinni.Fjölbreytt verkefni í Vinnuskóli Kópavogs um 1980. Kóparokk 1986 við gamla pósthúsið. Baráttan milli austurbæjar og vesturbæjar. Andrés Pétursson reynir að hafa hemil á villingunum úr vesturbænum og aðlinum úr austurbænum á fundi með Sögufélagi Kópavogs 2014. Kópavogsbíó endurvinnur myndir.Reynt við heimset í vatnsbyssuslag á landsmóti UMFÍ í Kópavogi 2007. Tómstundaklúbbar í Víghólaskóla og stuttmyndagerð í Þinghólsskóla um 1980. Breiðabliksstúlkur frumherjar í kvennafótbolta.Gullöld Blika í yngri flokkum. Erfið skráning fyrir Augnablik. Skop í Skólahljómsveit Kópavogs. Koddaslagur á Hlíðargarðshátíð.Átta 12 ára strákar stofna HK 1970. Gerpla, Skólahljómsveit Kópavogs og Kársneskórinn sýna samtakamátt sinn á 60 ára afmælishátíð Kópavogskaupstaðar. Pönksöguganga um Hamraborg og undirgöng með Dr. Gunna. Komin er fyrning á flest mál, en tek samt á móti lögbönnum! Á þessum árum var lausaganga barna ekki tiltökumál !