Það var hann Víglundur Pétursson(til vinstri á myndinni) sem hlaut fyrsta vinninginn í Jólahappdrætti Breiðabliks 2024.

Í fyrsta vinning eins og undanfarin ár var glæsilegt 300.000kr gjafabréf með Verdi Travel.

Lúðvík Arnarson(til hægri á myndinni), framkvæmdarstjóri Verdi Travel, mætti í Smárann og afhenti Víglundi gjafabréfið góða.

Hjá Verdi Travel er hægt að velja um fjöldan allan af skemmtilegum ferðum.

Sem dæmi má nefna eru fótboltaferðir, golfferðir, skíðaferðir, gönguferðir og svo margt fleira í boði.

Smellið hér til að sjá allt úrvalið hjá Verdi Travel.