Skáksveit Hörðuvallaskóla varð fyrr í dag Norðurlandameistari grunnskólasveita! Fyrir lokaumferðina hafði sveitin eins vinnings forskot á dönsku sveitina en þessar sveitir mættust í lokaumferðinni. Hörðuvellingar unnu 3-1 og þar með Norðurlandameistaratitilinn þeirra! Sveitin hlaut 17½ vinninga af 20 mögulegum sem er glæsilegur árangur. Mótið fór fram í Tampere í Finnlandi. Liðsmenn sveitarinnar eru allir iðkendur í Skákdeild Breiðabliks.
Sveit Norðurlandmeistara Hörðuvallaskóla skipuðu:
- Vignir Vatnar Stefánsson 3½ af 4
- Stephan Briem 3½ af 4
- Arnar Heiðarsson 4 v. af 4
- Sverrir Hákonarson 4 v. af 5
- Benedikt Briem 2½ af 3
- Óskar Hákonarson – tefldi ekkert
Liðsstjóri var Gunnar Finnsson.
Sveit Álfhólsskóla tefldi í flokki barnaskólasveita og lenti í fjórða sæti. Ísak Orri Karlsson úr Skákdeild Breiðabliks tefldi þar á öðru borði.
Nánar á: http://chess-results.com/tnr373044.aspx?lan=1&art=0 og https://skak.is/2018/09/09/horduvallaskoli-nordurlandameistarar-grunnskolasveita/