Virkni og Vellíðan er verkefni sem miðar að heilsueflingu fyrir 60 ára og eldri í Kópavogi.

Þátttakendur í verkefninu Virkni og Vellíðan fá tækifæri á því að stunda hreyfingu í því félagi sem stendur næst heimili þeirra í Kópavogi. Okkar helsta markmið er það að stuðla að bættri líkamlegri, andlegri og félagslegri heilsu bæjarbúa í Kópavogi og stuðla jafnframt að farsælli öldrun.

Fyrirkomulag verkefnisins miðast við hópþjálfun undir handleiðslu þjálfara 2-3x í viku í um 45 mínútur í senn. Á æfingum er lögð áhersla á fjölbreytta þjálfun og er það í samræmi við það sem rannsóknir hafa sýnt, að fjölþætt þjálfun sem innheldur styrktar-, þol-, liðleika- og jafnvægisæfingar eru æskilegar eldra fólki. Æfingar eru aðlagaðar út frá líkamlegri getu hvers og eins. Æfingar fara fram innan íþróttahúsanna þriggja Breiðablik, HK og Gerplu.

Á miðvikudögum eru öðruvísi æfingar í boði fyrir þá sem vilja æfa 3x í viku. Það er mismunandi hvaða heilsuefling er í boði á milli anna, en valið hefur staðið á milli Zumba, Yoga, Quigong, æfingar í fimleikasal Gerplu og fleira. Þátttakendi í Virkni og Vellíðan getur valið sér eitt af þremur valkostum sem í boði eru hverju sinni. Hægt er að sjá stundaskrár fyrir þessar æfingar inni á facebook síðu verkefnisins.

Virkni og Vellíðan leggur einnig áherslu á heilsulæsi hjá þátttakendum og því er reglulega boðið upp á fræðslufyrirlestra. Þá fáum við til okkar fræðimenn sem flytja fyrir okkur erindi um hina ýmsu áhrifaþætti heilbrigðis, svo sem eins og næringu, svefn, geðheildu, byltuvarnir og fleira.

Á hverri önn stendur Virkni og Vellíðan einnig fyrir félagslegum viðburðum eins og páskabingó, þorrablóti og jólahlaðborði svo eitthvað sé nefnt.

Haustönn 2023 stendur frá 21.ágúst – 20.desember og kostar 14.000 kr að taka þátt.

Hægt er að skrá sig hér, ef það virkar ekki þá bendum við á netfangið virkniogvellidan@gmail.com og facebook síðu verkefnisins. Verið er að vinna að heimasíðu fyrir Virkni og Vellíðan.

Vertu með í Virkni og vellíðan í Kópavogi!