Aðalfundur Karatedeildar Breiðabliks 2018 verður haldinn þann 10. apríl 2018 kl. 20:15 í veitingasal Smárans (2. hæð)
Dagskrá:
- Kosning fundarstjóra og ritara
- Formaður leggur fram skýrslu deildarinnar
- Endurskoðaður ársreikningur lagður fram til samþykktar
- Kosning formanns
- Kosning stjórnarmanna
- Umræður um málefni deildarinnar og önnur mál
Allir félagar Karatedeildar Breiðabliks sem eru 18 ára og eldri hafa rétt til að bjóða sig fram til setu í stjórn.
Skriflegu framboði skal skila til framkvæmdastjóra félagsins að lágmarki viku fyrir boðaðan aðalfund eða í síðasta lagi 3. apríl 2018.
Að öðru leyti vísast í lög félagsins sem finna má á heimasíðu Breiðabliks,
Stjórn Karatedeildar Breiðabliks