Í gærkvöld fór fram almennur félagsfundur sem haldinn var af Knattspyrnudeild Breiðabliks. Á fundinum var farið yfir vetraraðstöðumál knattspyrnudeildarinnar.
Fundurinn var gríðarlega vel sóttur af félagsmönnum ásamt bæjarfulltrúum og öðrum gestum og voru rúmlega 400 gestir mættir í Smárann.
Á fundinum fluttu erindi Jóhann Þór Jónsson formaður Barna- og unglingaráðs, Orri Hlöðversson formaður Knattspyrnudeildar Breiðabliks og Hákon Sverrisson yfirþjálfari yngri flokka Breiðabliks.
Fundargerð fundarins:
Félagsfundur knattspyrnudeildar 20.mars 2018
Skýrsla VSÓ um aðstöðumál Breiðabliks:
2017 VSÓ_Greinargerd um nýtingu – Breiðablik
Skýrsla vinnuhóps Breiðabliks um úrbætur á vetraraðstöðu:
2018 – Samantekt vinnuhóps Breiðabliks um Gervigrasvöll við Fífuna
Í lok fundar var samþykkt ályktun um áskorun til bæjarstjórnar um að hlustað yrði á sjónarmið félagsins er varðar vetraraðstöðuna.
Áskorun til Bærjarstjórnar Kópavogs.
Breiðablik fagnar áformum Kópavogsbæjar um að bæta aðstöðu félagsins til knattspyrnuæfinga yfir vetrarmánuðina eins og fram kemur í fjárhagsáætlun Kópavogs fyrir yfirstandandi ár.
Breiðablik hefur lagt fyrir Bæjarráð hugmynd um að gera upplýstan og upphitaðan gervigrasvöll við Fífuna. Slíkur völlur myndi nýtast fjölmörgum iðkendum knattspyrnu hjá Breiðablik betur en endurgerður völlur í Fagralundi. Nýr völlur við Fífuna mun styrkja innri starfsemi félagsins bæði félagslega og faglega.
Breiðablik hefur lagt fram útreikninga gerða af verkfræðingum sem sýna að kostnaður er álíka hvort heldur völlur rís við Fífuna eða í Fagralundi enda byggi menn sambærilega velli.
Almennur félagsfundur Knattspyrnudeildar Breiðabliks haldinn 20.mars 2018 í Smáranum skorar á Kópavogsbæ að nota það fjármagn sem er til ráðstöfunar til að gera upphitaðan og upplýstan gervigrasvöll í löglegri stærð við Fífuna.
Hér má sjá grein mbl.is um fundinn
Fundurinn var einnig sýndur beint á Blikar TV á youtube þar sem hægt er að nálgast upptöku af fundinum.