Aðalfundarboð Hjólreiðadeildar Breiðabliks 2020

 

Með vísan til 8. gr. laga Breiðabliks (https://breidablik.is/um-okkur/log-og-reglur/) er hér með boðað til aðalfundar Hjólreiðadeildar Breiðabliks sem haldinn verður miðvikudaginn 4. mars 2020 kl 19:30 í Smáranum, 2. hæð.

Dagskráin er sem hér segir:

  1. Kosning fundarstjóra og ritara
  2. Formaður leggur fram skýrslu deildar
  3. Ársreikningur staðfestur af skoðunarmönnum lagður fram til samþykktar
  4. Kosning formanns
  5. Kosning stjórnarmanna
  6. Umræða um málefni deildar og önnur mál

Rétt til setu á fundinum eiga allir félagsmenn Hjólreiðadeildarinnar og eruð þið öll hvött til að fjölmenna.