Breiðablik hefur samið við Jessie Loera um að leika með liðinu í Dominosdeildinni á næsta komandi keppnistímabili.

Jessie sem er leikstjórnandi er fædd 1997 og er 170cm. á hæð. Jessie kemur til liðs við Breiðablik frá hinum gríðarsterka Gonzaga háskóla í Bandaríkjunum. Jessie byrjaði alla leiki fyrir Gonzaga á síðasta keppnistímabili og skilaði 7.5 stigum, 2.2 fráköstum og 4.8 stoðsendingum að meðaltali í leik.

Jessie er baneitruð þriggjastigaskytta og mikill leiðtogi sem mun koma til með að stýra leik liðsins í takt við þann góða kjarna leikmanna sem fyrir er.

Von er á að Jessie Loera komi til landsins á næstu vikum.

Við bjóðum Jessie Loera hjartanlega velkomna í Kópavoginn!