Framundan eru fyrstu heimaleikir Breiðabliks í Subway-deildum karla og kvenna í körfubolta.
Bæði liðin okkar unnu sterka útisigra í síðustu umferð og má með sanni segja að það stefni í skemmtilegt tímabil í Smáranum.
Ekki láta þig vanta í stúkuna og tryggðu þér árskort körfuknattleiksdeildar Breiðabliks.
Árskortið er fáanlegt í gegn Stubbur appið og fylgja leiðbeiningar hér fyrir neðan um hvar í appinu kortin er að finna.
- 1. Þetta er forsíða Stubbur appsins. Hér skal smellt á “Tryggðu þér árskort hjá þínu félagi”.
- 2. Þá birtist eftirfarandi valmynd. Hér skal valið “Breiðablik – Körfubolti”.
- 3. Svo er bara að smella á “Kaupa” og þá leiðir appið þig í gegnum greiðslugáttina.