Átta Blikar keppa á frjálsíþróttamóti RIG 27. janúar
Frjálsíþróttahluti Reykjavíkurleikanna, RIG, fer fram í Laugardalshöllinni mánudagskvöldið 27. janúar og er einstaklega gaman að segja frá því að átta Blikar hafa unnið sér inn þátttökurétt á mótinu.
Þetta eru þau:
- Birna Kristín Kristjánsdóttir 60m og langstökk
- Þorleifur Einar Leifsson 60m og langstökk
- Ester Mía Árnadóttir 60m
- Þorleifur Einar Leifsson 60m og langstökk
- Patrekur Ómar Haraldsson 800m pilta U18
- Þorbjörg Gróa Eggertsdóttir 800m stúlkna U18
- Eyrún Svala Gustavsdóttir 60m stúlkna U16 og 800 m stúlkna U18
- Gunnar Bergvin Árnason 60m pilta U16
Mótið hefst kl. 19:30 og verður jafnframt sýnt í beinni útsendingu á RÚV 2. Við hvetjum fólk til að fjölmenna í höllina og hvetja Blikana okkar til dáða en miðasala fer fram á corsa.is og kostar miðinn 1.500 kr. Athugið að ekki verður hægt að kaupa miða á staðnum.
Áfram Breiðablik og áfram frjálsar! 💚