Í gær fór fram 97. ársþing UMSK og var þetta fyrsta þingið í sögunni sem fram fór með rafrænum hætti. Það bar helst til tíðinda Valdimar Leo Friðriksson sem hefur verið formaður UMSK síðastliðin 20 ár og hefur unnið mjög gott og óeigingjarnt starf í þágu sambandssins gaf ekki kost á sér og því þurfti að kjósa nýjan formann. Guðmundur Sigurbergsson bar sigur úr býtum í formannskosningunni með afgerandi hætti. Við óskum Guðmundi til hamingju með formanskjörið og bjóðum hann velkominn til starfa.

Blikarnir og frjálsíþróttafólkið Karen Sif Ársælsdóttir og Arnar Pétursson og voru valin íþróttakarl og Íþróttakona UMSK.

Karen er í­þrótta­kona ársins 2020 hjá Breiða­bliki en hún er einnig Ís­lands- og bikar­meistari kvenna í stanga­stökki og hefur ekki tapað keppni á árinu. Hún var ný­lega valin í A-lands­liðið í frjálsum í­þróttum og æfri í Dan­mörku.

Arnar gekk til liðs við Breiða­blik í upp­hafi árs 2020 og vann alls sex Ís­lands­meistara­titla á árinu, bæði fyrir götu­hlaup og lang­hlaup á braut. Hann stefnir nú á Ólympíu­leikana í Tókýó, sem stefnt er á að fari fram í suman, en hann er einnig hlaupa­þjálfari og fyrir­lesari. Líkt og Karen er Arnar einnig í A-lands­liði Ís­lands.

Flokkur ársins 20202 var kjörinn meistaraflokkur Breiðabliks í knattspyrnu en liðið varð Íslandsmeistari í knattspyrnu árið 2020.

Félagið er afar stolt að eiga eins frambærilegt íþrótta- og félagsfólk innan sinna raða og horfum við björtum augum til framtíðar.

Arnar og Karen voru valin íþróttakarl og íþróttakona UMSK 2020. Viðurkeningarnar voru veittar á 97. ársþingi UMSK sem haldið var í gærkvöldi á netinu. Bæði Arnar og Karen koma úr Breiðablik. Arnar tók við viðurkenningunni en Karen er stödd erlendis við æfingar.