Stjórn frjálsíþróttadeildar Breiðabliks boðar til aðalfundar fimmtudaginn 28. apríl klukkan 20:00.
Fundurinn verður haldinn í veislusal félagsins á 2. hæð í Smáranum.
Dagskrá:
1. Kosning fundarstjóra og ritara
2. Formaður leggur fram skýrslu deildar
3. Ársreikningur staðfestur af skoðunarmönnum lagður fram til samþykktar
4. Kosning formanns
5. Kosning stjórnarmanna
6. Önnur mál