Það er gleðilegt að líta yfir Fífuvelli þessa dagana þó að ekki sjáist iðkendur á leik í fótbolta þar!

Framkvæmdir við lagningu nýs gervigrasvallar við vesturenda Fífunnar eru hafnar og þegar ljósmyndara bar að garði var verið að skera grasþökur af vellinum sem stóð fyrir.
Samkvæmt verkáætlun er áætlað að verklok séu í nóvember á þessu ári.

Því má reikna með að næstu mánuði verði svæðið undirlagt vinnuvélum og ýmsum búnaði og því minnum við foreldra og iðkendur á að gæta varúðar kringum vinnusvæðið.