Breiðablik sigraði Hamar á heimavelli í öðrum leik liðanna í úrslitaeinvígi um sæti í Domino´s deildinni að ári. Blikar því komnir í mjög vænlega stöðu og leiða einvígið 2-0. Sigra þarf þrjá leiki til þess að tryggja sér sæti í deild þeirra bestu.
Blikar mættu flatir til leiks á meðan Hamar skoraði 7 fyrstu stig leiksins án þess að Breiðablik næði að svara, en þá kom áhlaup frá Blikum sem skoruðu 13 stig í röð. Eftir það var fyrri hálfleikur jafn og spennandi en Hamarsmenn settu þrist augnarbliki áður en flautað var til hálfleiks. Breiðablik 7 stigum undir í leikhlé.
Þessi þristur í lok fyrrihálfleiks virtist eitthvað hafa setið í Blikum því þeir misstu Hvergerðinga mest 13 stigum fram úr sér í 3. leikhluta. Jónas, þjálfari Blika, tók þá leikhlé og við það rönkuðu piltarnir úr Kópavogi við sér. Staðráðnir í því að laga stöðuna söxuðu þeir hægt og rólega á forskot Hamarsmanna, staðan 65-70 fyrir lokaleikhlutann. Með baráttu og eljusemi komumst Blikar yfir í 4. leikhluta og létu forystuna ekki af hendi. Lokatölur 87-84.
Það var frábær mæting á pallanna og létu stuðningsmenn beggja liða heyra vel í sér allann leikinn. Körfuknattleiksdeildin vill bera sérstakar þakkir til Kopacabana sem sáu til þess að allir fóru hásir heim að leik loknum!
Breiðablik: Árni Elmar Hrafnsson 17/6 fráköst, Snorri Vignisson 15/7 fráköst, Christopher Woods 13/8 fráköst, Erlendur Ágúst Stefánsson 12/4 fráköst/7 stoðsendingar, Jeremy Herbert Smith 12/7 fráköst/6 stoðsendingar, Halldór Halldórsson 7/4 fráköst, Sveinbjörn Jóhannesson 7/7 fráköst, Ragnar Jósef Ragnarsson 4.
Fráköst: 26 í vörn, 20 í sókn.
Næsti leikur liðanna er miðvikudaginn 11. apríl í Hveragerði og mun Körfuknattleiksdeild Breiðabliks bjóða stuðningsfólki sínu uppá fría rútuferð á leikinn, rútan fer frá Smáranum stundvíslega kl. 18:00. Rútan mun svo keyra aftur heim í Smárann strax að leik loknum.
Hægt er að melda sig í rútuna með því að haka við „going“ í fésbókarviðburði Körfuknattleiksdeildarinnar: https://www.facebook.com/events/1651340881621647/