Stjórn Taekwondo Breiðabliks boðar til aðalfundar kl. 18:00 laugardaginn 13. apríl. Fundurinn verður haldinn á miðhæð stúkunnar við Kópavogsvöll.
Dagskrá
Framkvæmd og dagskrá fundarins er skv. lögum Breiðabliks og er svohljóðandi:
- Kosning fundarstjóra og ritara
- Formaður leggur fram skýrslu deildar
- Endurskoðaður ársreikningur lagður fram til samþykktar
- Kosning formanns
- Kosning stjórnarmanna
- Umræða um málefni deilda og önnur mál