Það er búið að ganga mjög vel hjá hjólreiðadeild Breiðabliks í sumar. Æfingar í vor og sumar voru mjög vel sóttar enda er þetta sennilega eitt besta hjólasumar sem hefur komið í borg bleytunnar í mörg ár. Barnanámskeiðin og unglingafjallahjólaæfingarnar gengu líka mjög vel í sumar hjá deildinni. Núna eru skipulagðar æfingar í sumarfríi (ekki þjálfarar á æfingum) en við byrjum aftur á þriðjudegi eftir Verslunarmannahelgi.