Knattspyrnumaðurinn ungi og efnilegi Sveinn Aron Guðjohnsen hefur verið seldur frá Blikum til ítalska liðsins Spezia.

Sveinn Aron sem er tvítugur að aldri kom til Blika frá Val fyrir tveimur árum. Hann hefur leikið 31 leik með Breiðabliksliðinu og skorað í þeim sjö mörk. Sveinn Aron á einnig að baki 17 leiki með yngri landsliðum Íslands og hefur skorað fjögur mörk.

Málið kom frekar óvænt upp og þrátt fyrir að leikmaðurinn sé mikilvægur hlekkur í Blikaliðinu vildi stjórn knattspyrnudeildar ekki standa í vegi fyrir því að þessi ungi framherji fengi tækifæri til að spreyta sig í atvinnumennsku. Sveinn er núna á leið út til að ganga frá sínum málum og undirgangast læknisskoðun.

Blikar óska Sveini Aroni til hamingju með samninginn, þakka honum fyrir hans framlag til félagsins og óska honum velfarnaðar.