Firmakeppni Íslands í Þríþraut fer fram við sundlaug Kópavogs sunnudaginn 2. september nk kl. 10. Keppt er í sprettþraut þ.e. 400m sund, 10,4 km hjól og 3,6 km hlaupi.
Hvert fyrirtæki fær tvær tímatökuflögur sem þarf að skila í mark og nota til þess 2 til 6 þátttakendur sem skipta á milli sín 3 hlutum keppninnar, sundi, hjóli og hlaupi og færa tímatökuflöguna á milli liðsmanna inni á skiptisvæði. Einn keppandi má einnig klára alla þrautina.
Þátttökugjald fyrir hvert lið (2-6 þátttakendur) er 35.000 kr.
Fyrirtæki má kaupa fleiri en eitt lið inn í keppnina. Hvert lið tilnefnir fyrirliða við skráningu sem er ábyrgur fyrir samskiptum við mótstjórn. Það fyrirtæki sem hefur samanlagða 2 stystu keppnistímana vinnur Firmakeppni Íslands í þríþraut. Verðlaun fyrir sigur er farandbikar og eignarbikar.
ATH! Eingöngu starfsmenn fyrirtækis eru gjaldgengnir.