Sunnudaginn 9. desember fór fram keppni í slopestyle (brekkustíll) á Noregscup sem haldið var í Geilo, Noregi.

Blikinn og A-landsliðsmaðurinn, Marínó Kristjánsson var á meðal keppenda en hann stundar nám við NTG í Geilo.

Marinó Kristjánsson gerði sér lítið fyrir og sigraði senior flokkinn. Frábær úrslit og greinilegt að Marinó er að hefja þetta tímabil af krafti en fyrir stuttu endaði hann í 13.sæti á Evrópubikarmóti.

Úrslit úr mótinu má sjá hér