Tveir íslenskir iðkendur úr alpagreinum hafa tekið þátt í FIS æfingabúðum undanfarið og þar á meðal blikinn Agla Jóna Sigurðardóttir.

FIS æfingabúðir eru hluti af þróunarstarfi fyrir litlu þjóðirnar innan FIS. SKÍ býðst að senda tvo þátttakendur, einn af hvoru kyni, í æfingabúðirnar sem eru fyrir aldurinn 16-20 ára. FIS sér svo um allar æfingar, gistingu og ferðalög á meðan æfingabúðirnar standa yfir.

Þátttakendur frá SKÍ eru þau Agla Jóna Sigurðardóttir og Georg Fannar Þórðarson.

Æfingabúðirnar hófust þann 18.nóvember síðastliðinn og standa yfir til 15.desember en æft er á nokkrum stöðu í mið-Evrópu eða í ölpunum. Ferðin hófst á Pitztal jöklinum þar sem þau voru í um 12 daga áður en þau færðu sig yfir til Ítalíu. Mikið er lagt uppúr æfingum og eru reyndir þjálfarar á vegum FIS sem sjá um þær. Þau hafa keppt á einu stórsvigsmóti á Ítalíu sem fór fram 7.desember.

7.desember – Stórsvig
33.sæti Agla Jóna Sigurðardóttir 111.90 FIS stig (bæting á heimslista)
32.sæti Georg Fannar Þórðarson 117.52 FIS stig

Hér má sjá öll úrslit frá mótinu.