Aðalfundur Karatedeildar Breiðablik 2019 verður haldinn fimmtudaginn 4.apríl n.k. kl 18:00 í veitingasal Smárans (2.hæð).

Dagskrá:
1. Kosning fundarstjóra og ritara
2. Formaður leggur fram skýrslu deildarinnar
3. Endurskoðaður ársreikningur lagður fram til samþykktar
4. Kosning formanns
5. Kosning stjórnarmanna
6. Umræður um málefni deildarinnar og önnur mál

Allir félagar karateildar sem eru 18 ára og eldri hafa rétt til að bjóða sig fram til setu í stjórn.

Skriflegu framboði skal skila til framkvæmdastjóra félagsins að lágmarki viku fyrir boðaðan aðalfund.
Að öðru leyti vísast í lög félagsins sem finna má á heimasíðu Breiðabliks, breidablik.is

Hvetjum iðkendur og foreldra til að mæta og hafa þannig áhrif á framgang og stefnu deildarinnar.