Þjóðhátíðardegi okkar Íslendinga verður heldur betur fagnað í Kópavogi.
Á morgun, 17. júní, fara fram hvorki fleiri né færri en fimm hátíðir víðs vegar um bæinn.
Ein þeirra fer einmitt fram á bílaplaninu fyrir utan Fífuna og Smárann.
Um er að ræða svipað fyrirkomulag og tekið var upp í fyrra sökum samkomutakmarkanna.
Dagskrá:
10:00-10:30 17. júní hlaup Breiðabliks á Kópavogsvelli í umsjón Frjálsíþróttadeildar Breiðabliks (fyrir börn í 1.-6. bekk).
12:00-16:00 Hoppukastalar og tívolítæki, öllum að kostnaðarlausu.
14:00-16:00 Listamenn skemmta
- Eftirfarandi listamenn koma fram: Bríet, Selma og Regína Ósk, Lína Langsokkur, Saga Garðarsdóttir, Ræningjarnir úr Kardimommubæ, Leikhópurinn Lotta, Dansskóli Birnu Björns, Karíus og Baktus, Þorri og Þura, Gugusar, Sikurs, Eva Ruza og Hjálmar.
- Þessum listamönnum verður hinsvegar skipt niður á hátíðarsvæðin fimm.
- Hver listamaður kemur fram á tveimur stöðum.
- Mikil leynd ríkir yfir því hvaða listamenn koma fram í Smáranum.
Breiðablik verður með veitingasölu við stúkuna á Kópavogsvelli.
Sóttvarnarreglur:
- Grímuskylda
- Sprittskylda fyrir þá sem ætla að nýta sér leiktækin
- Svæðinu verður skipt upp í nokkur 300 manna hólf. Vinsamlegast setjið börnin í forgang.
Frétt frá Kópavogsbæ um hátíðarnar
Hlökkum til að sjá ykkur!