Kæru forráðamenn, iðkendur og aðrir blikar
Nú eru æfingatöflur vetrarins hver af annari að detta inn
Skráning hefst á næstu dögum og verður tilkynnt sérstaklega innan deilda þegar skráning opnar.
Sú breyting hefur orðið á að nú fara allar skráningar í félagið í gegnum Sportabler – sportabler.com/shop/breidablik
Öll samskipti milli þjálfara og foreldra fara fram í gegnum forritið og því mikilvægt að kynna sér vel og sækja forritið.
Til þess að gerast notandi þarf forráðamaður að nýskrá sig og sækja Sportabler snjallforritið.
Næst þarftu að skrá þig inn í hægra horninu uppi “Innskrá í Sportabler”. Í hnettinum við hliðiná getur þú valið tungumál.
Ef þú ert með Sportabler aðgang nú þegar þá notar þú hann til að skrá þig inn. Ef þú ert ekki með Sportabler aðgang þá velur þú nýskrá neðst í hægra horninu. ATH mikilvægt er að þú skráir þig inn sem þú sjálfur en ekki sem barnið þitt.
Ef nýskráning er valin þá þarftu að setja inn tölvupóst og kennitölu. Þegar þú smellir á Senda boð færðu staðfestingarpóst í tölvupósti og fylgir því ferli, velur lykilorð og ert þá kominn með aðgang. ATH staðfestingarpóstur gæti endað í Spam, junk eða trash í
tölvupóstinum.
Ef það kemur enginn staðfestingarpóstur á netfangið hjá þér eða villuboð kemur upp þá biðjum við ykkur að hafa samband í þjónustuver Sportabler þar sem öll mál eru leyst. (Gyllta blaðran niðri í hægra horninu á sportabler.com)
Þegar allt er klappað og klárt þá tekur við innskráning. Þegar þú skráir þig inn ertu beðinn um að auðkenna þig. Í kjölfarið lendir þú inn á island.is þar sem þú getur auðkennt þig með rafrænum skilríkjum eða íslykli
Þegar þú lýkur við auðkenningu þá ferðu beint inn á vefverslunina og getur keypt þá þjónustu sem er í boði. ATH þetta ferli þarftu bara að ganga í gegnum einu sinni. Efst vinstra megin sérðu sjálfan þig og börnin þín og uppi í hægra horninu sérðu yfirlit yfir reikninga og áskriftir sem þú hefur keypt.
Sjá leiðbeiningar frá Sportabler: Kaupa æfingagjöld/námskeið í gegnum vefverslun : Sportabler
Aðstoð: Ef ykkur vantar aðstoð eða hafið spurningar þá er þjónustuver Sportabler alltaf opið
Nánari upplýsingar – innheimta@breidablik.is
Hlökkum til að sjá ykkur !