2. Grandprix Karatesambands Íslands fór fram 2.-3. október í Síðuskóla á Akureyri. Farið var með rútu norður og gist í Glerárskóla. Mótið var fjölmennt og fór vel fram. Breiðablik var með 15 keppendur í kata og kumite og fylgdu þjálfararnir Móey María Sigþórsdóttir McClure og Tómas Aron Gíslason hópnum ásamt.

Tómas Pálmar átti góðan dag eins og svo oft áður og sigraði í flokki 16-17 ára pilta. Arna Kristín Arnarsdóttir hlaut silfur í kata 12 ára stúlkna.

Verðlaunahafar okkar voru þessir:

  • Tómas Pálmar Tómasson – gull í kata 16-17 ára
  • Arna Kristín Arnarsdóttir – silfur í kata 12 ára.
  • Sigrún Eva Þór Magnúsdóttir – silfur í kata 14-15 ára
  • Róbert Dennis Solomon – brons í kata 16-17 ára, brons í kumite 16 – 17 ára.
  • Samúel Týr Sigþórsson – brons í kata 16-17 ára, brons í kumite 16 – 17 ára.
  • Birgir Gauti Kristjánsson – brons í kata 14-15 ára
  • Arey Amalía Sigþórsdóttir – brons í kata 13 ára.

Auk keppenda og þjálfara dæmdu Helgi Jóhannesson, Jóhannes Felix Jóhannesson og Aron Breki Heiðarsson á mótinu fyrir hönd Breiðabliks.

Róbert Dennis og Samúel Týr með brons, Tómas Pálmar með gull í kata 16-17 ára

Samúel Týr og Róbert Dennis með brons í kumite 16-17 ára

Birgir Gauti lengst til vinstri með brons í kata 14- 15 ára

Sigrún Eva langst til hægri með silfur í kata 14-15 ára

Arna Kristín lengst til hægri með silfur í kata 12 ára

Arey Amalía lengst til vinstri með brons í kata 13 ára.