Aðalfundur Breiðbliks var haldinn miðvikudaginn 11. maí s.l og var hann mjög vel sóttur.

Guðmundur Sigurbergsson var kjörinn fundarstjóri og stýrði fundi.

Sveinn Gíslason formaður fór yfir skýrslu stjórnar og fór hann vítt og breitt yfir starfssemi félagsins í sinni ræðu en umsvif félagsins eru alltaf að aukast í takt við fjölgun iðkenda hjá félaginu.
Aðstöðumálin voru eins og áður ofarlega í huga þar sem skóinn kreppir víða innan félagsins í þeim málum.
Að lokum þakkaði hann sjálfboðaliðum, meðstjórnendum og starfsfólki kærlega fyrir samstarfið en hann er að láta af störfum eftir 23 ára stjórnarsetu hjá félaginu og þar af sem formaður félagsins frá árinu 2016.

Hrafnhildur Gísladóttir fjármálastjóri félagsins fór yfir ársreikning félagsins og var hann að því loknu samþykktur samhljóða.

Ársskýrsla aðalstjórnar má lesa hér.

Engar lagabreytingar lágu fyrir fundinn og því næst var farið í kosningar en einn var í framboði til formanns og var Ásgeir Baldurs því sjálfkjörinn formaður Breiðabliks til eins árs.

5 voru í framboði til stjórnarsetu í aðalstjórn og var því kosning um fjögur sæti sem Heiðar Ásberg formaður kjörbréfanefndar stýrði.

Eftirtaldir hlutu 2ja ára kosningu í aðalstjórn:
Aðalheiður María Vigfúsdóttir
Benedikt Sigurðsson
Gurðún Drífa Hólmgeirsdóttir
Pétur Hrafn Sigurðsson

Fyrir í aðalstjórn og voru kosin til 2ja ára á síðasta aðalfundi eru:
Rakel Ásgeirsdóttir
Þórólfur Heiðar Þorsteinsson

Sveinn Gíslason gaf ekki kost á sér áfram til formanns eins og áður segir og þá gáfu Halla Garðarsdóttir og Björgvin Gestsson ekki kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu í aðalstjórn. Eru þeim þökkuð frábær störf fyrir félagið.

Fyrirtækið Endurskoðun VSK ehf var kjörið áfram til að sjá um endurskoðun á félaginu og þá voru Sigurjón Valdimarsson og Steini Þorvalds kjörnir skoðunarmenn en Steini Þorvalds kemur inn sem nýr skoðunarmaður reikninga.
Jóhann Geir Harðarsson gaf ekki kost á sér áfram og eru honum þökkuð vel unnin störf á undanförnum árum.

Því næst var farið í heiðursveitingar sem að þessu sinni voru 17 talsins og má nánar lesa nánar um það hér.

Heiðursblikar
Haraldur Erlendsson
Sveinn Gíslason

Gullblikar
Aðalsteinn Jónsson
Pétur Hrafn Sigurðsson
Sigurður Ingi Hauksson

Silfurblikar
Aðalheiður María Vigfúsdóttir
Áslaug Pálsdóttir Ragnheiðardóttir
Guðlaug Björnsdóttir
Gunnar Þorvarðardóttir
Hákon Gunnarsson
Hákon Jónsdóttir

Hákon Hrafn Sigurðsson
Jónína Guðmundsdóttir
Karl Pálmason
Margrét J. Magnúsdóttir
Ragnar Sverrisson
Snorri Arnar Viðarsson

Þá var Félagsmálabikar Breiðabliks afhentur en hann hlaut Heimir Snær Jónsson sem hefur unnið mikið og óeigingjarnt starf fyrir körfuknattleiksdeild félagsins.

Að lokum voru umræður um málefni félagsins og sköpuðust góðar umræður undir þessum lið.

Að því loknu sleit nýkjörinn formaður félagsins, Ásgeir Baldurs, fundi.