Næstkomandi mánudag, þann 9. janúar klukkan 17:30-19:00, fer okkar árlega íþróttahátíð fram í veislusal Smárans.
Þar verður okkar fremsta afreksfólk í öllum deildum heiðrað fyrir árið 2022.
Dagskráin er eftirfarandi:
• Ásgeir Baldurs formaður Breiðabliks setur hátíðina.
• Íþróttakona og – karl hverrar deildar heiðruð
• Deildarbikar afhentur
• Þjálfarabikar afhentur
• Afrekshópur Breiðabliks heiðraður
• Félagsmálabikarinn afhentur
• Úrslitin úr kosningu á Íþróttakonu og -karli Breiðabliks kunngjörð og sigurvegarar hennar heiðraðir