Bikarmótaröðinni í ólympískum fjallahjólreiðum lauk um heigina á Akureyri þegar 3. bikarmótið fór fram í Kjarnaskógi. Björg Hákonardóttir varð í 2. sæti þar en hún hafði áður unnið hin bikarmótin í vor á Hólmsheiði og í Guðmundarlundi og stóð því uppi sem sigurvegari í mótaröðinni. Þetta er fyrsti bikarmeistaratitill Bjargar í ólympískum fjallahjólreiðum en hún hafði áður orðið bikarmeistari í cyclocross og er núverandi Íslandsmeistari í þeirri grein.