Stjórn Hjólreiðadeildar Breiðabliks boðar til aðalfundar miðvikudaginn 20. mars 2024 kl. 19:30 í Smáranum, 2. hæð.
Dagskráin er sem hér segir:
1. Kosning fundarstjóra og ritara
2. Formaður leggur fram skýrslu deildar
3. Ársreikningur staðfestur af skoðunarmönnum lagður fram til samþykktar
4. Kosning formanns
5. Kosning stjórnarmanna
6. Umræða um málefni deildar og önnur mál
Rétt til setu á fundinum eiga allir félagsmenn Hjólreiðadeildarinnar og eru þeir hvattir til að fjölmenna. Framboði til stjórnar skal skila að lágmarki viku fyrir boðaðan aðalfund.