Stjórn knattspyrnudeildar boðar til aðalfundar mánudaginn 15. nóvember 2021.
Fundurinn verður haldinn í veitingasalnum á 2. Hæðinni í Smáranum og hefst kl. 18:30.

 

Dagskrá:

1. Kosning fundarstjóra og ritara

2. Formaður leggur fram skýrslu deildarinnar

3. Ársreikningur lagður fram til samþykktar

4. Kosning formanns

5. Kosning stjórnarmanna

6. Umræður um málefni deildarinnar og önnur mál

 

Það skal tekið fram að fyrirhugað er að fresta samþykkt ársreiknings fyrir árið 2021 til framhaldsaðalfundar þegar staðfestur ársreikningur liggur fyrir.

Allir félagar knattspyrnudeildar sem eru 18 ára og eldri hafa rétt til að bjóða sig fram til setu í stjórn.

Skriflegu framboði skal skila til framkvæmdastjóra félagsins að lágmarki viku fyrir boðaðan aðalfund eða í síðasta lagi 8. nóvember 2021.

Að öðru leyti vísast í lög félagsins sem finna má á heimasíðu Breiðabliks, breidablik.is

Í kjölfar aðalfundar verður skipað í þau ráð sem heyra undir stjórn Knattspyrnudeildar þ.e. Meistaraflokksráð Karla og Kvenna auk Barna- og unglingaráðs.
Við hvetjum áhugasama að hafa samband við framkvæmdastjóra Breiðabliks á netfangið eysteinn@breidablik.is ef áhugi vaknar að taka þátt í skemmtilegu og gefandi starfi innan félagsins.

 

Stjórn Knattspyrnudeildar Breiðabliks