Eins og fram hefur komið greindist leikmaður Breiðabliks með Covid-19 þann 23. Júní síðastliðinn. Smitið var greint af frumkvæði leikmannsins og hafa Almannavarnir og aðrir hrósað henni sérstaklega fyrir hárrétt viðbrögð. Breiðablik hefur lagt áherslu á frá uppihafi að vinna náið með og fara í einu og öllu eftir fyrirmælum Almannavarna. Í samráði sóttvarnaryfirvöld var ákveðið að allir leikmenn meistaraflokks karla og kvenna, 2. flokks karla og kvenna, Augnabliks kvenna, þjálfarar yngri flokka félagsins og allt starfsfólk félagsins færi í skimum. Alls voru þetta um 250 sýni sem öll hafa reynst neikvæð.
 
Sérstakt sótthreinsunarteymi var fengið til að hreinsa öll rými á Kópavogsvelli í stúkunni og öðrum mannvirkjum.
 
Farið var enn betur yfir hólfaskiptingu á leikjum og framkvæmd hennar.
 
Leikmenn meistaraflokks kvenna eru í sóttkví til og með 7. júlí og munu ekki æfa eða keppa á svæðum félagsins fyrr en að því loknu.
 
Undirbúningur Símamótsins hefur verið í fullum gangi og tekur framkvæmdaáætlun mótsins mið af þeim kröfum sem Almannavarnir gera til slíkra viðburða hvað varðar sóttvarnir og fjarlægðamörk.
 
Þannig verða allir flokkar aðskildir þannig að 5. flokkur verður alfarið í Fagralundi en í Smáranum verður girt á milli keppnissvæða 6. og 7. flokks þannig að þar verður engin skörun á þátttakendum eða forráðamönnum. Í raun er því búið að breyta Símamótinu í þrjú minni fótboltamót sem gerir allan aðskilnað mun auðveldari.
 
Leikjum verður stillt upp þannig að liðin spila í ákveðnum blokkum fyrir og eftir hádegi til að fækka þeim foreldrum sem fylgja hverju liði og þanni virða takmörk um hámarksfjölda í hverju hólfi. Liðsstjórar sem fylgja hverju liði verða sérstaklega auðkenndir og mega einungis tveir liðsstjórar fylgja hverju liði í sameiginlega viðburði s.s. setningu, kvöldvöku og í mat.
 
Með þessu teljum við að hægt verði að gera þetta mót að frábærri upplifun fyrir stelpurnar en að sama skapi verðum við að treysta á foreldra að virða þær reglur sem settar verða fram og fara í einu og öllu eftir fyrirmælum mótsstjórnar.
,,Símamótið er einn stærsti atburður fótboltasumarsins hjá þúsundum stelpna og þeirra fjölskyldna“ sagði Jóhann Þór Jónsson, formaður Barna- og unglingaráðs, ,,margar af okkar bestu knattspyrnukonum hafa stigið sín fyrstu spor hér á þessu móti og það er vandfundin sú hreina leikgleði sem ríkir á mótinu, við í Breiðablik höfum gert og munum gera allt sem við getum gert til að haga allri framkvæmd í samræmi við fyrirmæli og reglur – og hlökkum til að sjá landsliðsmenn framtíðarinnar af öllu landinu í Kópavoginum í næstu viku.„