Hildur Sigurðardóttir hefur ákveðið að taka sér hlé frá þjálfun og mun þar af leiðandi láta af störfum sem þjálfari meistaraflokks kvenna.

Körfuknattleiksdeild Breiðabliks þakkar Hildi fyrir frábær störf fyrir félagið síðustu tvö ár og bindir vonir við að  hún verði vonandi áfram í kringum liðið í einhverri mynd.