Breiðablik hefur samið við Kelly Faris um að leika með liðinu á komandi keppnistímabili í Dominosdeildinni.
 
Kelly Faris er 27 ára bakvörður sem er 180 sentimetrar á hæð. Kelly er þungavigtar leikmaður með gríðarlega reynslu og
alvöru ferilskrá.
 
Hún lék fjögur ár með UConn í ameríska háskólaboltanum frá árinu 2009 til ársins 2013, þar sem hún varð tvisvar sinnum meistari, árin 2010 og 2013. Á lokaári sínu með UConn skilaði Kelly 10.2 stigum, 7.2 fráköstum og 3 stoðsendingum á
tæpum 30 mínútum í leik.
 
Eftir útskrift árið 2013 var Kelly valin númer 11 í WNBA nýliðavalinu og lék 24 leiki með Connecitcut Sun, þar sem hún skilaði 2 stigum og 2 fráköstum í leik. Síðan þá hefur Kelly leikið í efstu deildum í Ungverjalandi, Ástralíu og Ísrael. Að auki var hún í U18 landsliði Bandaríkjanna sem urðu heimsmeistarar árið 2008.
 
Hér er á ferðinni leikmaður af miklum gæðum og bindur félagið
miklar vonir við Kelly.
 
Margrét þjálfari hafði þetta að segja um komu Kelly:
 
„Kelly Faris er reynslumikil og kemur úr topp prógrammi frá meistara Geno Auriemma úr UConn háskólanum. Búin að spila víða um heim eftir útskrift og daðraði við WNBA nokkur tímabil. Hún er vinnuþjarkur og kemur til með að koma inn með reynslu og vinnusemi til Blikastúlkna. Ég treysti á að hún stjórni hraða bæði á æfingum og í leikjum. Hlutverk Kelly verður fyrst og fremst að leiða ungt lið Blika, enda kemur hún eins og áður sagði með mikla reynslu og vinnusemi. Það er gríðarleg tilhlökkun að fá hana í annars flottan hóp ungra Blikastúlkna“
 
Það eru spennandi hlutir að gerast hjá Breiðabliki um þessar mundir. Við bjóðum Kelly Faris hjartanlega velkomna í Kópavoginn!