Hjartadagshlaupið 2019 fer fram laugardaginn 28. september en hlaupið er frá Kópavogsvelli kl. 10. Ekkert þátttökugjald! Í boði verður að hlaupa 5 km og 10 km með flögutímatöku. Keppt er í þremur aldursflokkum og karla- og kvennaflokki. Smelltu hér til að skrá þig.
Hlaupið er haldið í tilefni alþjóðlega hjartadagsins sem haldinn er á heimsvísu þann 29. september ár hvert. Alþjóðahjartasambandið (World Heart Federation) hvetur aðildarfélög sín um allan heim til að halda upp á Hjartadaginn. Hjartarvernd er aðili að Alþjóða¬hjartasambandinu eitt félaga á Íslandi. Markmið Hjartadagsins, sem yfir 100 þjóðir taka þátt í um allan heim, er að auka vitund og þekkingu almennings á ógnum hjarta- og æðasjúkdóma og leggja áherslu á heilbrigða lífshætti svo að börn, unglingar og fullorðnir um allan heim öðlist betra og lengra líf.
Félögin sem standa að hlaupinu eru Hjartavernd, Hjartaheill, Neistinn og Heilaheill í samvinnu við Kópavogsbæ og Breiðablik.
Eins og áður sagði er markmiðið íþróttavikunni að hvetja almenning að finna sér hreyfingu við hæfi og vera virkur í daglegu lífi. Einkunarorð vikunnar er #BeActive og vonum við að sem flestir verðir #BeActive með okkur. Það má finna okkur á Facebook undir BeActive Iceland og á Instagram undir #BeActiveIceland.