Sumarnámskeið Breiðabliks 2020
Í sumar býður Breiðablik upp á íþróttanámskeið fyrir börn á aldrinum 6 til 12 ára í Smáranum og Fagralundi. Námskeiðin eru hugsuð fyrir börn fædd á árunum 2008 til 2013 og verður skipulögð dagskrá frá kl. 9.00-16.00 alla virka daga.
Boðið verður upp á;
- Ævintýranámskeið
- Frjálsíþróttanámskeið
- Knattspyrnunámskeið
- Körfuboltanámskeið
- Karatenámskeið
- Skáknámskeið
- Sundnámskeið
- Hjólreiðanámskeið (Einungis ætlað börnum f. 2008-2012, námskeiðin eru í Smáranum)
Tímatafla og staðsetning námskeiða
SMÁRINN
Vika | 24 | 25 | 26 | 27 | 28-29 | 30 | 31 | 32 | 33 |
Dags. | 08.06-
12.06 |
15.06-19.06 | 22.06-26.06 | 29.06-03.07 | SUMARLEYFI | 20.07-24.07 | 27.07-31.08 | 04.08-07.08 | 10.08-14.08 |
Ævintýranámskeið | 9-12 | 9-12 | 9-12 | 9-12 | 9-12 | 9-12 | 9-12 | 9-12 | |
Frjálsíþróttanámskeið | 13-16 | 13-16 | 13-16 | 13-16 | 13-16 | 13-16 | 13-16 | 13-16 | |
Körfuboltanámskeið | 9-12 | 9-12 | 9-12 | 9-12 | 9-12 | 9-12 | 9-12 | 9-12 | |
Karatenámskeið | 9-12 | 9-12 | 9-12 | 9-12 | 9-12 | 9-12 | 9-12 | ||
Skáknámskeið | 9-12 | 9-12 | 9-12 | 9-12 | 9-12 | ||||
Knattspyrnunámskeið | 13-16 | 13-16 | 13-16 | 13-16 | 13-16 | 13-16 | 13-16 | 13-16 | |
Hjólreiðanámskeið
(10-12 ára) |
9-12
13-16 |
9-12
13-16 |
9-12 | 9-12 | |||||
Hjólreiðanámskeið
(8-9 ára) |
9-12
13-16 |
9-12
13-16 |
9-12 | 9-12 |
FAGRILUNDUR
Vika | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 |
Dags. | 08.06-
12.06 |
15.06-19.06 | 22.06-26.06 | 29.06-03.07 | 06.07-10.07
|
13.07-17.07 | 20.07-24.07
|
27.07-31.07 |
Ævintýranámskeið | 13-16 | 13-16 | 13-16 | 13-16 | 13-16 | 13-16 | 13-16 | 13-16 |
Frjálsíþróttanámskeið | 9-12 | 9-12 | 9-12 | 9-12 | 9-12 | 9-12 | 9-12 | 9-12 |
Körfuboltanámskeið | 13-16 | 13-16 | 13-16 | 13-16 | 13-16 | 13-16 | 13-16 | 13-16 |
Knattspyrnunámskeið | 13-16 | 13-16 | 13-16 | 13-16 | 13-16 | 13-16 | 13-16 | 13-16 |
Verðskrá
Verð fyrir eina viku | Verð kr. |
Námskeið 1/2 dagur (3 klst.) | 7.300 |
Hádegismatur | 3.850 |
Gæsla 1 klst. á dag | 2.000 |
- Sama verð er á öll námskeiðin og hægt er að velja um hálfan dag eða heilan dag.
- Þegar heilsdagsnámskeið er valið er hægt að blanda saman tveimur mismunandi námskeiðum.
- Gert er ráð fyrir að börnin taki með sér hollt nesti en það er einn nestistími á hverju námskeiði.
- Í Smáranum er hægt að kaupa heitan mat í hádeginu og gæslu frá 8.00-9.00 og 16.00-17.00.
- Ekki er boðið upp á mat eða gæslu í Fagralundi.
- ATH vikurnar 6.-10.júlí og 13.-17.júlí eru einungis námskeið í Fagralundi, ekki Smáranum.
Hér má sjá upplýsingar um hvar er mæting á hvert námskeið fyrir sig.
Námskeið í Smáranum sem byrja klukkan 9:00:
Það er mæting á námskeiðin klukkan 9:00 í íþróttasal Smárans. Þar finna börnin sína leiðbeinendur en hvert og eitt námskeið er merkt á ákveðnum stað í íþróttasalnum sem krakkarnir mæta á alla vikuna. Mikilvægt er að foreldrar/forráðamenn finni leiðbeinanda hvers námskeið og láti vita að barnið er mætt á námskeiðið, leiðbeinendur mæta 5 mínútum áður en námskeiðið byrjar. Að gefnu tilefni er ekki leyfilegt að mæta hálftíma fyrir námskeiðið og skilja barnið sitt eftir í Smáranum, ef það er þörf á því að mæta snemma með barnið er hægt að skrá það í gæslu frá 8:00-9:00 en gæslan er í veitingasal Smárans á 2.hæð og skráning fer fram í gegnum Nóra.
Mikilvægt er að sækja barnið á réttum tíma ef barnið er ekki að fara á annað námskeið eftir hádegi. Ef barnið er á öðru námskeiði eftir hádegi er best að skrá barnið í hádegismat því þá er barninu fylgt í mat, síðan í gæslu og að lokum á næsta námskeið eftir hádegi. Börnin eru sótt í innganginn í Smáranum.
Námskeið í Smáranum sem byrja klukkan 13:00:
Frjálsíþróttanámskeið: Mæting í íþróttasal Smárans.
Knattspyrnunámskeið: Mæting í tengibygginguna við Fífuna.
Námskeið í Fagralundi, bæði námskeiðin klukkan 9:00 og 13:00:
Mæting á námskeiðin er í innganginn í Fagralundi. Þar finna börnin sinn leiðbeinanda en mikilvægt er að foreldrar/forráðamenn finni leiðbeinanda námskeiðsins og láti vita að barnið er mætt á námskeiðið, leiðbeinendur mæta 5 mínútum áður en námskeiðið byrjar. Að gefnu tilefni er leyfilegt að mæta hálftíma fyrir námskeiðið og skilja barnið sitt eftir í Fagralundi.
ATH á körfuboltanámskeiðinu er mæting í íþróttasalinn niðri í Fagralundi.
ATH bannað er að koma með hnetur í nesti þar sem iðkendur á námskeiðunum eru með bráðaofnæmi fyrir hnetum.
Foreldrum/forráðamönnum barna með sérþarfir býðst að sækja um stuðning fyrir börn sín á almenn sumarnámskeið og hvetjum við foreldra til að nýta sér það. Hér er linkur sem hægt er að sækja um stuðning: https://sumar.kopavogur.is/hrafninn-trod/serst-sumarst/
*Félagið áskilur sér rétt til að sameina námskeið eða færa þau milli staða ef ekki næst lágmarks þátttaka. Félagið áskilur sér rétt til að loka fyrir skráningu á námskeið ef hámarksfjölda er náð, hámarksfjöldi er mismunandi eftir námskeiðum.
*Félagið áskilur sér rétt til að breyta dagskránni (t.d. vegna veðurs eða mætingar á námskeiðið). Börnin eru beðin um að koma í íþróttafötum og helst í íþróttaskóm og klædd eftir veðri ef útivera er á dagkrá!
Hægt verður að skrá börn á námskeið og í gæslu frá og með 2. maí en allar upplýsingar um skráningarferlið er að finna á heimasíðu Breiðabliks – Skrá iðkanda í sumarnámskeið
Yfirumsjón með námskeiðunum hefur Sóllilja Bjarnadóttir, félagsfræðingur og landsliðskona í körfuknattleik. Ef einhverjar spurningar vakna er hægt að hafa samband við Halldór í gegnum tölvupóst: halldor@breidablik.is
Lýsing á námskeiðum:
Á Fótbolta-,Frjálsíþrótta-, Karate-, Körfubolta-, Sund- og Skáknámskeiðum verða undirstöðuatriði greinanna kynnt fyrir iðkendum í bland við skemmtilega leiki sem henni tengjast.
Á Ævintýranámskeiðunum verður farið í ýmislega leiki, íþróttir, göngutúra og fjöruferðir svo eitthvað sé nefnt.
Hjólareiðanámskeið eru ætlað börnum fæddum 2008-2012 og er hámarksfjöldi 15 manns. Iðkendur þurfa að mæta með sín eigin hjól og hjálm. Hjólað verður um skemmtilega og áhugaverða staði í Kópavogi og bæjarfélögum í kring. Farið verður yfir helstu hjólreiðarreglur s.s. hvernig á að hjóla í hóp, stöðva, hætta framundan, hola í vegi, o.s.frv. Stígar og fjallahjólastígar verða kannaðir og náttúrunnar notið í góðum félagsskap.
**Sundnámskeið
Sunddeild Breiðabliks býður í sumar upp á sundnámskeið í Sundskóla Breiðabliks í júní og júlí. Líkt og áður sjá reyndir og traustir kennarar um kennsluna, ásamt aðstoðarfólki í laug. Aðstoðarfólkið fylgir börnunum í gegnum búnings- og baðklefa.
Sjá nánar á https://breidablik.is/sund/sumar-sundnamskeid/