Íþróttahátíð Breiðabliks fyrir árið 2021 fór fram í veislusal Smárans í gær.
Þar var okkar fremsta afreksfólk í flestum okkar deildum heiðrað ásamt því að Þjálfara- og Deildarbikar félagsins voru afhentir.
Að endingu voru úrslit úr nýtilkominni kosningu á Íþróttakarli og Íþróttakonu Breiðabliks kunngjörð.
Eins og áður segir þá fór fram kosning á Íþróttakonu og -karli félagsins og var hún með nýju sniði.
Kosningin fór þannig fram að hver íþróttadeildarstjórn fékk einn atkvæðisrétt ásamt Aðalstjórn félagsins og Íþróttastjóra, samtals 15 atkvæði.
Hvert atkvæði skilaði inn sitthvorum topp-3 listann, einum lista yfir konur og einum yfir karla.
Valið stóð á milli þeirra aðila sem hver deild hafði tilnefnt, sjá hér fyrir neðan.
Óheimilt var að kjósa aðila úr eigin deild.
1.sætis atkvæði gaf 15 stig, 2.sæti gaf 10 stig og 3.sæti gaf 3 stig.
Þ.a.l. var mest hægt að fá 225 stig.
Bæði Agla María og Arnar sigruðu kosninguna með nokkrum yfirburðum.
Agla María hlaut 160 stig á meðan næsta á eftir hlaut 85 og Arnar hlaut 180 stig á meðan næsti á eftir hlaut 110 stig.
Þjálfarabikar félagsins hlaut Alberto Borges Moreno, frjálsíþróttaþjálfari, en hann fagnar 10 ára starfsafmæli á árinu og hefur unnið einstaklega gott starf fyrir félagið.
Deildarbikar félagsins hlaut Hjólreiðadeildin fyrir góðan rekstur ásamt virkilega góðum árangri iðkenda á bæði lands- og heimsvísu.
Viðurkenningarnar og handhafar þeirra voru eftirfarandi:
Íþróttakona – Agla María Albertsdóttir, knattspyrnukona
Íþróttakarl – Arnar Pétursson, frjálsíþróttakarl
Þjálfarabikar – Alberto Borges Moreno, frjálsíþróttadeild
Deildarbikar – Hjólreiðadeild
Frjálsíþróttakona – Birna Kristín Kristjánsdóttir
Frjálsíþróttakarl – Arnar Pétursson
Hjólreiðakona – Elín Kolfinna Árnadóttir
Hjólreiðakarl – Ingvar Ómarsson
Hlaupakona – Sigríður Rúna Þóroddsdóttir
Hlaupakarl – Thijs Kreukels
Karatekona – Móey María Sigþórsdóttir McClure
Karatekarl – Tómas Pálmar Tómasson
Knattspyrnukona – Agla María Albertsdóttir
Knattspyrnukarl – Viktor Karl Einarsson
Kraftlyftingarkona – Sóley Margrét Jónsdóttir
Kraftlyftingarkarl – Guðfinnur Snær Magnússon
Körfuknattleikskona – Isabella Ósk Sigurðardóttir
Körfuknattleikskarl – Hilmar Pétursson
Skákkarl – Vignir Vatnar Stefánsson
Skíðakarl – Björn Davíðsson
Sundkona – Freyja Birkisdóttir
Sundkarl – Patrik Viggó Vilbergsson
Þríþrautarkona – Guðlaug Edda Hannesdóttir
Þríþrautarkarl – Sigurður Örn Ragnarsson
Þess ber að geta að Rafíþrótta- og Taekwondodeildir félagsins tilnefndu engan í ár ásamt því að Skák- og Skíðadeildirnar tilnefndu enga konu að þessu sinni.
Smelltu hér til að lesa texta um alla verðlaunahafana.
- Íþróttakarl Breiðabliks 2021 – Arnar Pétursson ásamt Sveini Gíslasyni formanni félagsins
- Íþróttakona Breiðabliks 2021 – Agla María Albertsdóttir, Flosi Eiríksson formaður knattspyrnudeildar tók við verðlaununum í fjarveru hennar
- Þjálfarabikar Breiðabliks 2021 – Alberto Borges Moreno, frjálsíþróttaþjálfari
- Deildarbikar Breiðabliks 2021 – Hjólreiðadeildin. Hér er María formaður deildarinnar ásamt Sveini Gíslasyni formanni félagsins
- Frjálsíþróttakona Breiðabliks 2021 – Birna Kristín Kristjánsdóttir, Áslaug formaður deildarinnar tók við verðlaununum í fjarveru hennar
- Frjálsíþróttakarl Breiðabliks 2021 – Arnar Pétursson
- Hjólreiðakona Breiðabliks 2021 – Elín Kolfinna Árnadóttir, María formaður tók við verðlaununum í fjarveru hennar
- Hjólreiðakarl Breiðabliks 2021 – Ingvar Ómarsson
- Hlaupakona Breiðabliks 2021 – Sigríður Rúna Þóroddsdóttir
- Hlaupakarl Breiðabliks 2021 – Thijs Kreukels, Óskar í stjórn deildarinnar tók við verðlaununum í fjarveru hans
- Karatekona Breiðabliks 2021 – Móey María Sigþórsdóttir McClure
- Karatekarl Breiðabliks 2021 – Tómas Pálmar Tómasson
- Knattspyrnukona Breiðabliks 2021 – Agla María Albertsdóttir, Flosi formaður deildarinnar tók við verðlaununum í fjarveru hennar
- Knattspyrnukarl Breiðabliks 2021 – Viktor Karl Einarsson, Kolbrún móðir Viktors tók við verðlaununum í fjarveru hans
- Kraftlyftingarkona Breiðabliks 2021 – Sóley Margrét Jónsdóttir
- Kraftlyftingarkarl Breiðabliks 2021 – Guðfinnur Snær Magnússon
- Körfuknattleikskona Breiðabliks 2021 – Isabella Ósk Sigurðardóttir
- Körfuknattleiksmaður Breiðabliks 2021 – Hilmar Pétursson
- Skákkarl Breiðabliks 2021 – Vignir Vatnar Stefánsson
- Skíðakarl Breiðabliks 2021 – Björn Davíðsson, Davíð faðir Björns tók við verðlaununum í fjarveru hans
- Sundkona Breiðabliks 2021 – Freyja Birkisdóttir
- Sundkarl Breiðabliks 2021 – Patrik Viggó Vilbergsson, Gylfi vinur Patriks tók við verðlaununum í fjarveru hans
- Þríþrautarkarl Breiðabliks 2021 – Sigurður Örn Ragnarsson, Margrét formaður tók við verðlaununum í fjarveru hans
- Þríþrautarkona Breiðabliks 2021 – Guðlaug Edda Hannesdóttir, Sigríður móðir Guðlaugar tók við verðlaununum í fjarveru hennar
- Heiðar Bergmann Heiðarsson, betur þekktur sem Heisi, sá um að streyma hátíðinni af stakri snilld
- Arnór Daði Gunnarsson Íþróttastjóri stýrði hátíðinni