Aðalfundur frjálsíþróttadeildar Breiðabliks var haldinn fimmtudaginn 11. apríl í veislusal Breiðabliks í Smáranum.

Á fundinum var árskýrsla síðasta árs kynnt fyrir fundargestum, ársreikningur lagður fram og samþykktur og að endingu var kosið í nýja stjórn.

Einn stjórnarmaður lét af störfum á fundinum, Steinþór Einarsson og stjórnarmaðurinn Bergþóra Guðjónsdóttir, færði sig yfir í varastjórn.

Áslaug Pálsdóttir var endurkjörin formaður deildarinnar og með henni í stjórn sitja þær:

  • Anna Jónsdóttir, ritari
  • Helga Elísa Þorkelsdóttir, gjaldkeri
  • Elísabet Rán Andrésdóttir
  • Gréta Björg Jakobsdóttir, meðstjórnandi
  • Hallgerður Lind Kristjánsdóttir, meðstjórnandi

Varastjórn:

  • Bergþóra Guðjónsdóttir
  • Bjarki Rósantsson
  • Geirlaug Geirlaugsdóttir

Ný stjórn tekur fagnandi á móti komandi verkefnum og mun leggja sitt af mörkum til að efla góða deild enn frekar og hvetja iðkendur sína til dáða í orði og verki, því saman komumst við lengra og hærra.

Hér er ársskýrslu frjálsíþróttadeildar á pdf formi

Hér er ársskýrslan á vefformi