Greiðsluupplýsingar
Nafn: Knattspyrnudeild Breiðabliks
Kennitala: 410284-1389
Reikningsnúmer: 0130-26-410047
—
Skráningarfrestur rennur út 22. apríl – Skráning telst gild þegar búið er að greiða staðfestingargjald liða og búið að fylla út skráningarform sem sent er á félögin(google forms).
Eindagi þátttökugjalda er 22. maí – Þá þarf nákvæmur fjöldi leikmanna í sérhverju liði frá öllum félögum að liggja fyrir.
—
ATH! Senda skal kvittanir vegna allra greiðslna á simamotid@breidablik.is.
Mikilvægt er að láta skýringu fylgja með hverri greiðslu um hvaða flokkur og félag um er að ræða ásamt því hversu mörg lið/leikmenn verið er að greiða fyrir og með eða án gistingar.
SÍMAMÓTIÐ 2024 – GJÖLD
Staðfestingargjöld liða (5., 6. og 7. flokkur)
Eindagi staðfestingargjalda fyrir hvert lið er 22. apríl.
Staðfestingargjald fyrir hvert lið án gistingar : 12.700kr
Staðfestingargjald fyrir hvert lið með gistingu : 24.000kr
ATH! Staðfestingargjöld eru ekki innifalin í þátttökugjöldum.
Þátttökugjald einstaklinga (5., 6. og 7. flokkur)
Eindagi þátttökugjalda er 22. maí.
Þátttökugjald fyrir hvern iðkanda án gistingar: 12.700kr
Þátttökugjald fyrir hvern iðkanda með gistingu: 24.000kr
——————————————————————————————————————————–
Litla Símamótið (8.flokkur)
Litla Símamótið er dagsmót sem fer fram í Fífunni á laugardaginn 13. júlí.
Þátttökugjald: 3.000kr per leikmann – innifalið í því eru kappleikir, Símamótsgjöf(öðruvísi en sú sem eldri fá), setningarathöfn, kvöldskemmtun, grillveisla og skrúðganga.
Eindagi þátttökugjalda er 30. júní.
Hvað er innifalið á Símamóti?
Innifalið í þátttökugjaldi án gistingar
Kappleikir í þrjá daga, Símamótsgjöfin, skrúðganga, setningarathöfn, grillveisla og kvöldskemmtun(6., 7. og 8.fl)/bíó(5.fl).
—
Innifalið í þátttökugjaldi með gistingu
Kappleikir í þrjá daga, Símamótsgjöfin, skrúðganga, setningarathöfn, grillveisla og kvöldskemmtun(6., 7. og 8.fl)/bíó(5.fl).
Að auki: Gisting í skóla, Morgunmatur(fös, lau og sun), Kvöldmatur(fim og fös – grillveisla fyrir alla á lau)
Reiknað er með einum liðsstjóra per lið og ekki þarf að borga aukalega fyrir þann aðila heldur er matur+gisting innifalið gegn framvísun armbands.
Fyrirvari vegna myndatöku á Símamótinu
Allir þátttakendur fara með liði sínu í liðsmyndatöku og að loknu mótsins gefst forráðamönnum kostur á að nálgast myndirnar af liði sínu án endurgjalds, af heimasíðunni www.sporthero.is
Með þátttöku á Símamótinu er forráðamönnum því ljóst að barn þeirra verður að öllum líkindum myndað og þeir samþykkir því og myndir birtast af börnum þeirra, þeim til nálgunnar á mótinu eða af heimasíðu SportHero.
Til þeirra forráðamanna sem ekki vilja að barn þeirra sé myndað, er þeim bent á að senda póst á afskraning@sporthero.is og tilgreina nafn nafn barns, lið, númer á treyju og leiktíma liðsins svo hægt sé að verða við óskum um að barn sé ekki myndað. Frekari fyrirspurnum um myndatöku er einnig hægt fá svör við með pósti á johann@sporthero.is eða með símtali í síma: 662-1111
Endurgreiðslur
Staðfestingargjald liða – fæst ekki endurgreitt
Staðfestingargjald liða í gistingu – fæst ekki endurgreitt
Þátttökugjald einstaklinga – fæst endurgreitt til og með 30. júní
Þátttökugjald einstaklinga í gistingu – fæst endurgreitt til og með 30. júní