Símamótið 2023 verður haldið dagana 13. – 16.júlí.
Símamótið var fyrst haldið 1985 og verður þetta því 39. mótið í röðinni.
Mótið er fyrir 5., 6. og 7. flokk kvenna og í fyrsta skipti 2021 var Litla Símamótið haldið fyrir 8.flokk.
Keppendur eru um 3.000 og er þetta stærsta knattspyrnumótið á landinu. Allir leikir í mótinu fara fram á völlum á félagssvæði Breiðabliks.