Stjórn knattspyrnudeildar hefur ákveðið að boða til aðalfundar miðvikudaginn 20. nóvember 2019.
Fundurinn verður haldinn í veitingasalnum á jarðhæð stúkunnar og hefst kl. 17:30.

Dagskrá:

  1. Kosning fundarstjóra og ritara
    2. Formaður leggur fram skýrslu deildarinnar
    3. Ársreikningur lagður fram til samþykktar
    4. Kosning formanns
    5. Kosning stjórnarmanna
    6. Umræður um málefni deildarinnar og önnur mál

Það skal tekið fram að fyrirhugað er að fresta samþykkt ársreiknings fyrir árið 2019 til framhaldsaðalfundar þegar staðfestur ársreikningur liggur fyrir.

Allir félagar knattspyrnudeildar sem eru 18 ára og eldri hafa rétt til að bjóða sig fram til setu í stjórn.

Skriflegu framboði skal skila til framkvæmdastjóra félagsins að lágmarki viku fyrir boðaðan aðalfund eða í síðasta lagi 13. nóvember 2019.

Að öðru leyti vísast í lög félagsins sem finna má á heimasíðu Breiðabliks, breidablik.is

Stjórn Knattspyrnudeildar Breiðabliks