Íþróttahátíð Breiðabliks fór fram síðastliðinn mánudag í veislusal félagsins.
Hægt er að horfa á upptöku af hátíðinni með því að smella hér.
Um er að ræða árlegan viðburð sem haldinn er í boði aðalstjórnar Breiðabliks og hefur það markmið að sameina allar deildir félagsins, gera undanförnum árangri hátt undir höfði ásamt því að heiðra þá sem mest hafa skarað fram úr.
Ásgeir Baldurs, formaður Breiðabliks, setti hátíðina áður en að Arnór Daði, íþróttastjóri félagsins, kynnti hverja viðurkenninguna á fætur annarri.
Byrjað var á að verðlauna karl og konu úr hverri deild áður en að Deildar-, Þjálfara, Afreks- og Félagsmálabikarinn voru afhentir. Að lokum voru úrslitin úr kosningunni á Íþróttakonu og -karli Breiðabliks kunngjörð en þar fær hver deild innan félagsins eitt atkvæði ásamt aðalstjórn og íþróttastjóra.
Það er skemmst frá því að segja Sóley Margrét Jónsdóttir úr kraftlyftingardeildinni var kjörin Íþróttakona Breiðabliks og Arnar Pétursson úr frjálsíþróttadeildinni var kjörinn Íþróttkarl Breiðabliks.
Breiðablik óskar öllum verðlaunahöfum innilega til hamingju en lista yfir þá aðila má sjá hér fyrir neðan:
Frjálsíþróttakona – Júlía Kristín Jóhannesdóttir
Frjálsíþróttakarl – Arnar Pétursson
Hjólreiðakona – Björg Hákonardóttir
Hjólreiðakarl – Ingvar Ómarsson
Hlaupakona – Lilja Dögg Stefánsdóttir
Hlaupakarl – Thijs Kreukels
Karatekona – Móey María Sigþórsdóttir
Karatekarl – Samúel Týr Sigþórsson
Knattspyrnukona – Karitas Tómasdóttir
Knattspyrnukarl – Höskuldur Gunnlaugsson
Kraftlyftingarkona – Sóley Margrét Jónsdóttir
Kraftlyftingarkarl – Alexander Örn Kárason
Körfuknattleikskona – Þórdís Jóna Kristjánsdóttir
Körfuknattleikskarl – Everage Lee Richardsson
Rafíþróttakarl – Emil Valdimarsson
Skákkarl – Vignir Vatnar Stefánsson
Skíðakarl – Björn Davíðsson
Sundkona – Freyja Birkisdóttir
Sundkarl – Guðmundur Karl Karlsson
Þríþrautarkona – Guðlaug Edda Hannesdóttir
Þríþrautarkarl – Sigurður Örn Ragnarsson
*Rafíþrótta-, skák- og skíðadeildin tilnefndu ekki konu í ár ásamt því að taekwondodeildin tilnefndi engan í ár.
Deildarbikar – Þríþrautardeildin
Þjálfarabikar – Arna Þórey Sveinbjörnsdóttir úr sunddeildinni
Afreksbikar – Meistaraflokkur karla í knattspyrnu
Félagsmálabikar – Örn Örlygsson
Íþróttakona – Sóley Margrét Jónsdóttir úr kraftlyftingardeildinni
Íþróttakarl – Arnar Pétursson úr frjálsíþróttadeildinni
–
Smellið hér til að lesa texta um alla verðlaunahafa hátíðarinnar í ár.
Smellið hér til að skoða glærukynningu hátíðarinnar.
- Ásgeir formaður félagsins setti hátíðina
- Hlín, móðir Júlíu, tók við verðlaununum fyrir hennar hönd. Til vinstri er Þórólfur úr aðalstjórn
- Arnar og Þórólfur úr aðalstjórn
- Björg var fjarverandi
- Ingvar var fjarverandi
- Lilja og Þórólfur úr aðalstjórn
- Thijs og Þórólfur úr aðalstjórn
- Móey og Rakel úr aðalstjórn
- Samúel og Rakel úr aðalstjórn
- Flosi, formaður knattspyrnudeildar, tók við verðlaununum fyrir hennar hönd. Til vinstri er Rakel úr aðalstjórn.
- Flosi, formaður knattspyrnudeildar, tók við verðlaununum fyrir hennar hönd. Til vinstri er Rakel úr aðalstjórn.
- Snorri, systursonur Höskuldur, tók við verðlaununum fyrir hans hönd. Til vinstri er Rakel úr aðalstjórn.
- Sóley og Rakel úr aðalstjórn
- Alexander og Rakel úr aðalstjórn
- Þórdís og Rakel úr aðalstjórn
- Veigar og Rakel úr aðalstjórn
- Everage var fjarverandi
- Emil og Rakel úr aðalstjórn
- Vignir var fjarverandi
- Björn var fjarverandi
- Freyja og Pétur úr aðalstjórn
- Guðmundur og Pétur úr aðalstjórn
- Guðlaug var fjarverandi
- Sigurður og Pétur úr aðalstjórn
- Arnór Daði íþróttastjóri félagsins stýrði hátíðinni
- Sigurður, Þríþrautarkarl 2022, tók við verðlaununum fyrir hönd deildarinnar. Til vinstri er Benedikt úr aðalstjórn.
- Arna og Benedikt úr aðalstjórn
- Aron Már styrktarþjálfari liðsins tók við verðlaununum. Til vinstri er Aðalheiður úr aðalstjórn.
- Meistaraflokkur karla í knattspyrnu var á æfingu á sama tíma og hátíðin fór fram en voru sáttir með Afreksbikarinn að henni lokinni
- Örn og Aðalheiður úr aðalstjórn ásamt syni Aðalheiðar.
- Sóley og Ásgeir formaður félagsins
- Arnar og Ásgeir formaður félagsins
- Sóley og Arnar ásamt Ásgeiri formanni félagsins