Þær Þórdís Jóna Kristjánsdóttir, Ragnheiður Einarsdóttir og Brooklyn Panell hafa allar óskað eftir að segja upp samningum sínum við Breiðablik.
Þó mikill missir sé af þeim öllum, bæði innan vallar sem utan, hefur Breiðablik ákveðið að verða við þeirra óskum.
Þórdís hefur verið ein af lykilleikmönnum Breiðabliks undanfarin ár og á sama tíma og við þökkum Þórdísi innilega fyrir hennar framlag til Breiðabliks óskum við henni alls hins besta.
Ragnheiður og Brooklyn komu til okkar í byrjun tímabils og þökkum við þeim sömuleiðis fyrir samfylgdina og vonum að þeim farnist vel.
Stjórn félagsins er nú að fara yfir málin og skoða með framhald.