Íþróttahátíð Breiðabliks fór fram gær, miðvikudaginn 10.janúar í veislusal félagsins.

Hægt er að horfa á upptöku af hátíðinni með því að smella hér.

Um er að ræða árlegan viðburð sem haldinn er í boði aðalstjórnar Breiðabliks og hefur það markmið að sameina allar deildir félagsins, gera undanförnum árangri hátt undir höfði ásamt því að heiðra þá sem mest hafa skarað fram úr.

Ásgeir Baldurs, formaður Breiðabliks, setti hátíðina áður en að Arnór Daði, íþróttastjóri félagsins, kynnti hverja viðurkenninguna á fætur annarri.

Byrjað var á að verðlauna karl og konu úr hverri deild áður en að Deildar-, Þjálfara, Afreks- og Félagsmálabikarinn voru afhentir. Að lokum voru úrslitin úr kosningunni á Íþróttakonu og -karli Breiðabliks kunngjörð en þar fær hver deild innan félagsins eitt atkvæði ásamt aðalstjórn og íþróttastjóra.

Það er skemmst frá því að segja Sóley Margrét Jónsdóttir úr kraftlyftingardeildinni var kjörin Íþróttakona Breiðabliks og Vignir Vatnar Stefánsson úr skákdeildinni var kjörinn Íþróttkarl Breiðabliks.

Breiðablik óskar öllum verðlaunahöfum innilega til hamingju en lista yfir þá aðila má sjá hér fyrir neðan:

Frjálsíþróttakona – Birna Kristín Kristjánsdóttir

Frjálsíþróttakarl – Guðjón Dunbar Diaquoi

Hjólreiðakona – Björg Hákonardóttir

Hjólreiðakarl – Ingvar Ómarsson

Hlaupakona – Lilja Dögg Stefánsdóttir

Hlaupakarl – Thijs Kreukels

Karatekona – Móey María Sigþórsdóttir

Karatekarl – Samúel Týr Sigþórsson

Knattspyrnukona – Agla María Albertsdóttir

Knattspyrnukarl – Höskuldur Gunnlaugsson

Kraftlyftingarkona – Sóley Margrét Jónsdóttir

Kraftlyftingarkarl – Guðfinnur Snær Magnússon

Körfuknattleikskona – Aníta Rún Árnadóttir

Körfuknattleikskarl – Sölvi Ólason

Skákkarl – Vignir Vatnar Stefánsson

Skíðakarl – Björn Davíðsson

Sundkona – Freyja Birkisdóttir

Sundkarl – Ýmir Chatenay Sölvason

Þríþrautarkona – Ewa Przybyla

Þríþrautarkarl – Sigurður Örn Ragnarsson

*Rafíþrótta- og taekwondodeildin tilnefndu engan í ár ásamt því að skák- og skíðadeildin tilnefndu ekki konu í ár.

Deildarbikar – Kraftlyftingardeildin

Þjálfarabikar – Sigurður Örn Ragnarsson úr þríþrautardeildinni

Afreksbikar – Meistaraflokkur karla í knattspyrnu

Félagsmálabikar – Jón Jóhann Þórðarson

Íþróttakona – Sóley Margrét Jónsdóttir úr kraftlyftingardeildinni

Íþróttakarl – Vignir Vantar Stefánsson úr skákdeildinni