Entries by

Arnór Sveinn Aðalsteinsson ráðinn aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla

Arnór Sveinn hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla og tekur við keflinu af Eyjólfi Héðinssyni sem er að koma til annarra starfa hjá Breiðabliki. Arnór Svein þarf ekki að kynna fyrir Blikum en hann hefur leikið 277 leiki fyrir félagið. Hans fyrsti leikur var árið 2003 og varð hann bikarmeistari með liðinu árið 2009 og […]

Eyjólfur Héðinsson ráðinn deildarstjóri meistaraflokka Breiðabliks

Eyjólfur Héðinsson, aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla, hefur verið ráðinn sem deildarstjóri meistaraflokka Breiðabliks. Eyjólfur hefur verið hluti af þjálfarateymi meistaraflokks karla frá árinu 2022. Fyrst sem þjálfari með sérstaka áherslu á unga leikmenn og síðar sem aðstoðarþjálfari. Reynsla hans og innsýn sem aðstoðarþjálfari og vinna hans með ungum leikmönnum mun án efa nýtast afar vel á […]