Entries by

Sóley Margrét til liðs við Breiðablik

Sóley Margrét Jónsdóttir er gengin til liðs við kraftlyftingadeild Breiðabliks. Sóley er fædd 2001 og uppalin á Akureyri en er nú flutt í Kópavoginn. Sóley hefur unnið til fjölda verðlauna hérlendis sem erlendis og er núverandi Heims- og Evrópumeistari í stúlknaflokki. Þess er vert að geta að Sóley er ekki einungis framúrskarandi í sínum aldursflokki […]

Aðalfundi Frjálsíþróttadeildar frestað

Aðalfundi Frjálsíþróttadeildar Breiðabliks sem átti að fara fram í kvöld, þriðjudagskvöld kl 19:00 í veitingasal Smárans, hefur verið frestað til næstu mánaðamóta(apríl-maí) Nákvæm dagsetning verður ákveðin eftir páska.

Æfingar í yngri flokkum Breiðabliks falla niður vikuna 16. – 23. mars

English below   Æfingar í yngri flokkum Breiðabliks falla niður vikuna 16. – 23. mars Að tilmælum yfirvalda falla niður allar æfingar í öllum deildum Breiðabliks hjá iðkendum á grunn- og leikskólaaldri vikuna 16. – 23. mars. Iðkendur á þessum aldri eru hvattir til almennrar hreyfingar og þá hafa einhverjar deildir sett upp heimaæfingar sem […]

Skilaboð vegna samkomubanns

Kæru foreldrar/forráðamenn Þetta eru skrýtnir tímar sem við stöndum frammi fyrir núna og ljóst að samkomubannið hefur töluverð áhrif á starfsemi íþróttafélaganna í landinu sem og aðra hópa! Nú þegar hafa nokkur sérsambönd frestað öllum viðburðum sem voru fyrirhugaðir næstu vikurnar og einnig hefur mótahaldi verið frestað. Með samkomubanninu sem tekur gildi aðfaranótt mánudagsins 16. […]

Skilaboð vegna COVID19

Kæru foreldrar/forráðamenn! Í ljósi blaðamannafundar sem er nýlokið að þá er í skoðun hvernig íþróttafélögin Breiðablik, Gerpla og HK útfæra það sem kom fram á fundinum m.t.t. æfinga ofl. Upplýsingar verða sendar strax út þegar við vitum meira og nánari fyrirmæli hafa verið gefin út af íþróttahreyfingunni sem og Kópavogsbæ. Við biðjum foreldra/forráðamenn að sýna […]

Heiðranir á 70 ára afmæli félagsins

Afmælishátíð Breiðabliks var haldin sunnudaginn, 16. febrúar síðastliðinn. Hátíðin tókst vel til að mati viðstaddra og virtust afmælisgestir vera í skýjunum. Sólin mætti stundvíslega fyrir “Ferðina að upphafinu”, sögugöngu í boði Sögufélags Kópavogs, þar sem rölt var að Vallargerðisvellinum og til baka, með mörgum skemmtilegum viðkomum á leiðinni. Eftir gönguna var svo öllum boðið inn í […]

,

Markús með aldursflokkamet

Þau gleðitíðindi urðu á Meistaramóti Íslands í Fjölþrautum þann 8. febrúar sl. að Markús Birgisson bætti Íslandsmetið í fimmtarþraut í flokki 15 ára og yngi. Metið er enn ein rós í hnappagat þessa fjölhæfa íþróttamans og vert er að fylgjast með honum í framtíðinni þar sem líklegt er að hann láti að sér kveða í […]

Aðalfundur kraftlyftingadeildar Breiðabliks 2020

Stjórn kraftlyftingadeildar Breiðabliks boðar til aðalfundar kraftlyftingadeildar Breiðabliks kl. 19:00 föstudaginn 6. mars. Fundurinn verður haldinn í Glersal stúkunnar við Kópavogsvöll. Dagskrá Framkvæmd og dagskrá fundarins er skv. lögum Breiðabliks og er svohljóðandi: 1. Kosning fundarstjóra og ritara 2. Formaður leggur fram skýrslu deildar 3. Endurskoðaður ársreikningur lagður fram til samþykktar 4. Kosning formanns 5. […]