Entries by

Íslandsmeistaratitlaregn á Meistaramóti Íslands

Sindri okkar Magnússon varð Íslandsmeistari í stangarstökki þegar hann gerði sér lítið fyrir og stökk 4,32 m sem er jafnframt persónulegt met hjá okkar manni. Sindri er í hópi 14 Blika sem skráðir eru til leiks á Meistaramóti Íslands, sem fram á ÍR vellinum nú um helgina, en óhætt er að segja að um sé […]

NM U20 2023

Norðurlandameistaramót U20 ára fer fram nú um helgina og er keppnin haldin í Osló í Noregi. Ísland teflir fram sameiginlegu liði með Danmörku gegn liðum frá Finnlandi, Svíþjóð og Noregi. Í öllum greinum keppa tveir einstaklingar frá hverri þjóð og er um að ræða stigakeppni í stúlkna- og piltaflokki til viðbótar við heildarstigakeppni. 12 keppendur […]

Arnar Pétursson – Íslandsmeistari í hálfu maraþoni

** Arnar okkar Pétursson – Íslandsmeistari í hálfu maraþoni ** Hið árlega Akureyrarhlaup fór fram 6. júlí sl. þar sem keppt var í þremur vegalengdum en hálfmaraþonið er jafnframt Íslandsmeistaramót í þeirri vegalengd. Skemmst er frá því að segja að Arnar okkar Pétursson kom fyrstur í mark í hálfu maraþoni á tímanum 1:08:22 og bætti […]

MÓTSMETAREGN Á MÍ 11-14 ÁRA!

Við erum að rifna úr stolti yfir árangri Blikahópsins okkar sem lét ekki votviðri helgarinnar á sig fá og vann samtals til 36 verðlauna á MÍ 11-14 ára. 14 gull, 13 silfur og 9 brons féllu í skaut okkar fólks sem skilaði þeim þriðja sæti í heildarstigakeppninni. Blikinn Patrekur Ómar Haraldsson gerði sér lítið fyrir […]

Blikar í Evrópukeppni

Evrópubikar landsliða fer fram dagana 20.-22. júní í Silesia í Póllandi. Mótið er nú hluti af Evrópuleikunum eða European Games og hefur deildunum verið fækkað niður í þrjár í stað fjögurra áður. Ísland er í annarri deild með fimmtán öðrum þjóðum og eiga Blikar fjóra fulltrúa í íslenska landsliðshópnum. Þorleifur Einar Leifsson keppir í stöng, […]

17. júní hlaup

Hæ hó jibbí jei og jibbí jei, það er að koma 17. júní! 17. júní hlaup frjálsíþróttadeildar Breiðabliks fer fram á Kópavogsvelli kl. 10 laugardaginn 17. júní. Hlaupið er ætlað börnum í 1.-6. bekk og fá fljótustu hlaupararnir í hverjum árgangi verðlaunapening að hlaupi loknu. Sjáumst á Kópavogsvelli.

Takk Blikar

Meistaramót Íslands 15-22 ára fór fram á Kópavogsvelli um síðustu helgi og óhætt að segja að mikið hafi verið um persónulegar bætingar og ársbesta. Lið HSK/Selfoss sigraði í stigakeppni félagsliða og í þremur aldursflokkum en liðið hlaut samtals 459 stig. Í öðru sæti var lið Breiðabliks með 286 stig og lið ÍR í því þriðja […]

Meistaramót Íslands 15-22 ára 2023

Meistaramót Íslands 15-22 ára í frjálsum íþróttum hefst í dag og eru yfir 150 þátttakendur skráðir til leiks frá 12 félögum og einn erlendur keppandi. Frjálsíþróttadeild Breiðabliks býður til mótsins sem verður haldið á Kópavogsvelli dagana 9.-11. júní og er gaman að segja frá því að Blikar eiga 18 fulltrúa á móti helgarinnar. Keppendur frá […]

Þorleifur – Tugþraut

Blikinn Þorleifur Einar Leifsson er einn af fjórum Íslendingum sem keppir á Norðurlandameistaramóti í fjölþrautum sem fer fram í Svíþjóð um helgina. Þorleifur keppir í tugþraut pilta U20 og sendum við honum bestu kveðjur yfir hafið!

Arnar Péturs – Smáþjóðaleikar

Við náðum í skottið á okkar manni, Arnari Péturssyni, en hann hafnaði í 5. sæti í 10.000 m hlaupi karla á tímanum 31:22;41. Heimamaðurinn Jordan Gusman vann hlaupið á 29:37;96 og bætti 36 ára gamalt mótsmet um rúmar sex sekúndur. Næsta verkefni hjá Arnari er Heimsmeistaramótið í utanvegahlaupum sem fram fer í Austurríki 8. júní […]