Íþróttahátíð Breiðabliks var haldin í fyrsta skipti með núverandi sniði í gær, 9. janúar. Markmiðið með Íþróttahátíðinni er að gera árangur einstaklinga og hópa hjá þeim fjölmörgu deildum sem félagið starfrækir sýnilegri. Innan félagsins er verið að vinna frábært starf og er það því mikilvægt að líta yfir farin veg og fanga íþróttaafrekum ársins 2019. Á hátíðinni var heiðrað þá aðila sem hafa skarað fram úr í hverri deild fyrir sig og þeim veitt verðurkenning, voru það stjórnir deildanna sem ákváðu hvaða íþróttafólk innan sinna raða hrepptu viðurkenningu.
Afrekskarl, Afrekskona og Afrekshópur Breiðabliks fengu sérstök verðlaun en Afreksbikarar eru veittir því íþróttafólki sem hefur náð bestum árangri innan félagsins á árinu. Þá var Deildarbikar Breiðabliks afhentur en hann er veittur einni deild félagsins og er tekið tillit til virkni starfs innan deildarinnar, nýliðunar, árangurs í keppni og fjárhagslegrar afkomu á síðasta starfsári. Sömuleiðis var Þjálfarabikar Breiðabliks afhentur en hann er veittur þjálfara einnar deildar félagsins og er tekið tillit til árangurs, áhuga, menntunar og metnaðar. Það er aðalstjórn félagsins og ráðgjafar hennar sem stóðu fyrir valinu á Deildarbikarnum, Afreksbikurum og Þjálfarabikarnum.
Íþróttafólk, þjálfarar, stjórnarfólk, bæjarfulltrúar og aðrir félagsmenn voru viðstaddir hátíðina og er félagið hæst ánægt með hvernig tiltókst. Stefnan er sett á að halda hana árlega hér eftir og efla enn frekar. Við óskum öllu okkar flotta íþróttafólki innilega til hamingju með árangurinn á árinu og sendum hrós á allt það frábæra fólk sem kemur að starfi deildanna og sýnir af sér mikla ósérhlífni og gefur tíma sinn í sjálfboðavinnu til félagsins. Að lokum vill félagið þakka öllum þeim sem voru viðstaddir kærlega fyrir komuna.
Afrekshópur Breiðabliks 2019: Meistaraflokkur kvenna í knattspyrnu
Afrekskarl Breiðabliks 2019: Patrik Viggó Vilbergsson – Sunddeild
Afrekskona Breiðabliks 2019: Berglind Björg Þorvaldsdóttir – Knattspyrnudeild
Deildarbikar Breiðabliks 2019: Taekwondodeild
Þjálfarabikar Breiðabliks 2019: Kristófer Gautason – Skákdeild
Íþróttakarl Frjálsíþróttadeildar: Juan Ramon Borges
Íþróttakona Frjálsíþróttadeildar: Birna Kristín Kristjánsdóttir
Íþróttakarl Hjólreiðadeildar: Ingvar Ómarsson
Íþróttakona Hjólreiðadeildar: Margrét Pálsdóttir
Íþróttakarl Hlaupahóps: Ingvi Jónsson
Íþróttakona Hlaupahóps: Lilja Dögg Stefánsdóttir
Íþróttakarl Karatedeildar: Tómas Pálmar Tómasson
Íþróttakona Karatedeildar: Svana Katla Þorsteinsdóttir
Íþróttakarl Knattspyrnudeildar: Andri Rafn Yeoman (Fjarverandi)
Íþróttakona Knattspyrnudeildar: Berlind Björg Þorvaldsdóttir
Íþróttakarl Kraflyftingardeildar: Halldór Eyþórsson
Íþróttakona Kraftlyftingardeildar: Birgit Rós Becker
Íþróttakarl Körfuknattleiksdeildar: Hilmar Pétursson
Íþróttakona Körfuknattleiksdeildar: Telma Lind Ásgeirsdóttir
Íþróttakarl Skákdeildar: Birkir Ísak Jóhannsson
Íþróttakona Skákdeildar: *
Íþróttakarl Skíðadeildar: Tandri Snær Traustason
Íþróttakona Skíðadeildar: Agla Jóna Sigurðardóttir (Fjarverandi)
Íþróttakarl Sunddeildar: Patrik Viggó Vilbergsson
Íþróttakona Sunddeildar: Ragna Sigríður Ragnarsdóttir
Íþróttakarl Taekwondodeildar: **
Íþróttakona Taekwondodeildar: **
Íþróttakarl Þríþrautardeildar: Sigurður Örn Ragnarsson
Íþróttakona Þríþrautardeildar: Rannveig Anna Guicharnaud
*Kvennkyns iðkendur Skákdeildar Breiðabliks eru enn það ungir að árum að ákveðið var að tilnefna ekki að þessu sinni
** Iðkendur Taekwondodeildar Breiðabliks eru enn það ungir að árum að ákveðið var að tilnefna ekki að þessu sinni
Helgi Viðar var ljósmyndari á Íþróttahátíðinni og þökkum við honum innilega fyrir þessar frábæru myndir.