Gjöld fyrir haust/vetur 2024 verða tilkynnt von bráðar
Flokkar | Æfingagjöld | Tímabil |
Allir flokkar | 65.000/80.000 | 1. janúar – 31. desember |
Sé gengið er frá greiðslu fyrir 15. febrúar er upphæðin 65.000 kr, eftir það er upphæðin 80.000kr. Mögulegt er að skipta gjaldinu í sex greiðslur með því að senda póst á innheimta@breidablik.is
FRÍSTUNDASTYRKUR KÓPAVOGSBÆJAR
Börn 5-18 ára með lögheimili í Kópavogi geta ráðstafað frístundastyrk að upphæð 56.000 kr fyrir árið 2022.
Einnig er hægt að nýta íþróttastyrk Reykjavíkur, sendið tölvupóst á innheimta@breidablik.is fyrir nánari upplýsingar.
Innifalið í iðkendagjöldum Breiðabliks er:
• Þjálfun við bestu aðstæður með vel menntuðum þjálfurum
- Hafi æfingagjöld ekki verið greidd inna tveggja vikna og barnið verið við æfingar verður sendur greiðsluseðill á forráðamenn.
- Ef forráðamaður vill breyta greiðslumáta eftirá leggst á aukagjald 1.500 kr
- Veittur er 5% systkina/millideildarafsláttur
- Iðkendur með ógreidd æfingagjöld fá ekki að keppa fyrir hönd Breiðabliks og hafi ekki verið gengið frá æfingagjöldum eftir eina ítrekun má búast við að þjálfarar vísi iðkendum af æfingum. Einnig eru þessir iðkendur ekki tryggðir á æfingum, sjá nánar á vef félagsins: https://breidablik.is/um-okkur/trygging-idkenda/
- Greiðsla æfingagjalds er forsenda/skilyrði fyrir þátttöku á æfingum og mótum sem flokkur þess fer á. Þjálfarar skrá mætingar á hverja æfingu.
- Kjósi iðkandi að hætta æfingum verður úrsögn að berast með tölvupósti á netfangið innheimta@breidablik.is
- Það er á ábyrgð forráðamanna að tilkynna úrsögn, tilkynning til þjálfara iðkendans verður ekki tekin gild.
- Æfingagjöld eru ekki endurgreidd nema að góð og gild ástæða sé fyrir því að barnið hætti s.s. búferlaflutningur og/eða meiðsli. Hafa skal samband á innheimta@breidablik.issem afgreiðir umsóknir.
- Ekki er heimilt að endurgreiða það sem greitt hefur verið með Frístundastyrk Kópavogsbæjar
- Æfingagjöld miðast við staðgreiðslu, þ.e. að þau séu greidd í einni greiðslu. Ef æfingagjöldum er dreift þá bætist við 3% kostnaður vegna dreifingarinnar.