fbpx

Æfingagjöld

Skráning er hafin fyrir veturinn 2023-24, smelltu hér!


Æfingagjöld

Æfingatímabilið er 1. okt. 2023 – 30. sept. 2024. Félagsgjald í Breiðablik er innifalið í æfingapökkunum.

Fyrir nánari upplýsingar, sendið póst á thrithraut@breidablik.is

Þríþraut

Þríþraut æfingagjöld

Hægt er að skipta greiðslum í allt að 6 mánuði á greiðslukort eða greiðsluseðil í heimabanka, eða dreifa greiðslum í allt að 36 mán. með Síminn Pay.

Makar fá 20% afslátt af ofangreindum æfingagjöldum og 25 ára og yngri og 67 ára og eldri fá 50% afslátt. Mikilvægt er að hafa FYRST samband við innheimta@breidablik.is sem sendir greiðslutengil með afslætti.

Garpasund

Fyrir nánari upplýsingar, sendið póst á garpasund@gmail.com

Garpasund æfingagjöld

Samstarf er á milli þríþrautardeildar og Stór-Blika sunddeildar til að bjóða fullorðnum upp á meiri fjölbreytileika í sundæfingum og -æfingatímum. Þeim sem skráðir eru í þríþrautar- eða garpasundspakka býðst 40% afsláttur af æfingaaðild hjá Stór-Blikum í hópa X, Y og Z. Sjá nánar á svæði sunddeildar. Þeir sem vilja nýta sér millideildaafsláttinn við skráningu þurfa FYRST að hafa samband við innheimta@breidablik.is og gjaldkeri.sundbliki@gmail.com


Skriðsundsundnámskeið fyrir fullorðna

Námskeið æfingagjöld

Smellið hér fyrir nánari upplýsingar

Innifalið í iðkendagjöldum Breiðabliks er:
• Þjálfun við bestu aðstæður með vel menntuðum þjálfurum

  • Hafi æfingagjöld ekki verið greidd inna tveggja vikna og barnið verið við æfingar  verður sendur greiðsluseðill á forráðamenn.
  • Ef forráðamaður vill breyta greiðslumáta eftirá leggst á aukagjald 1.500 kr
  • Veittur er 5% systkina/millideildarafsláttur
  • Iðkendur með ógreidd æfingagjöld fá ekki að keppa fyrir hönd Breiðabliks og hafi ekki verið gengið frá æfingagjöldum eftir eina ítrekun má búast við að þjálfarar vísi iðkendum af æfingum. Einnig eru þessir iðkendur ekki tryggðir á æfingum, sjá nánar á vef félagsins: https://breidablik.is/um-okkur/trygging-idkenda/
  • Greiðsla æfingagjalds er forsenda/skilyrði fyrir þátttöku á æfingum og mótum sem flokkur þess fer á.  Þjálfarar skrá mætingar á hverja æfingu.
  • Kjósi iðkandi að hætta æfingum verður úrsögn að berast með tölvupósti á netfangið innheimta@breidablik.is
  • Það er á ábyrgð forráðamanna að tilkynna úrsögn, tilkynning til þjálfara iðkendans verður ekki tekin gild.
  • Æfingagjöld eru ekki endurgreidd nema að góð og gild ástæða sé fyrir því að barnið hætti s.s. búferlaflutningur og/eða meiðsli. Hafa skal samband á innheimta@breidablik.issem afgreiðir umsóknir.
  • Ekki er heimilt að endurgreiða það sem greitt hefur verið með Frístundastyrk Kópavogsbæjar